Helgarferðir til Akureyrar með Steinþóri – mars 2026

3 Dagar

Komdu með í skemmtilega helgarferð innanlands með Steinþóri hjá Steintours!

Fararstjóri í ferðunum er Steinþór Ólafsson, löggiltur leiðsögumaður og eigandi Steintours sem starfrækt hefur verið í yfir 40 við góðan orðstír. Hann er menntaður myndlistarmaður og myndlistarkennari ásamt því að hafa numið leikhúsfræði, sjónvarps- og kvikmyndafræði og bókmenntafræði og hefur þar að auki brennandi áhuga á listum og lífinu sjálfu. Steinþór mun leiða hópinn í menningarferðalag um Akureyri.

Gott að vita

  • Steinþór Ólafsson
  • 13. - 15. mars og 27. - 29. mars
  • 97.900
  • 25% af heildarverði ferðar
  • min 20

Tvær helgar eru í boði; 13. – 15. mars og 27. – 29. mars. Haldið er af stað frá Reykjavík á föstudegi og komið aftur á sunnudegi.

Verð er 97.900 kr./mann m.v. gistingu í hjónaherbergi (ATH. greitt er fyrir báða herbergisfélaga í einu)

13. – 15. mars

13. mars – föstudagur
Hópurinn hittist á bílastæði við Orkuna á Miklubraut (á móts við Kringluna). Brottför þaðan kl. 13:00. Ekið af stað norður. Komið til Akureyrar seinnipartinn þar sem gist er á Berjaya hótelinu. Frjáls tími.
Farið á sýningu Leikfélags Akureyrar – Birtíngur sem hefst kl. 20:00.
14. mars – laugardagur
Morgunmatur á hóteli og frjáls tími
Eftir hádegi er farið á Listasafn Akureyrar og Minjasafnið.
Frjáls tími
Um kvöldið er farið á Græna hattinn á tribute tónleika Fleetwood Mac þar sem platan Rumours verður flutt í heild sinni.
15. mars – sunnudagur
Morgunmatur og frjáls tími
Tékkað út kl. 11 og haldið aftur í bæinn skömmu síðar.

27. – 29. mars

27. mars – föstudagur
Hópurinn hittist á bílastæði við Orkuna á Miklubraut (á móts við Kringluna). Brottför þaðan kl. 13:00.Ekið af stað norður. Komið til Akureyrar seinnipartinn þar sem gist er á Berjaya hótelinu. Frjáls tími.
Um kvöldið fer hópurinn á útgáfutónleika með SúEllen á Græna hattinum þar sem þeir félagar kynna nýju plötuna sína. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00.
28. mars – laugardagur
Morgunmatur á hóteli og frjáls tími
Eftir hádegi er farið á Minjasafnið á Akureyri
Frjáls tími
Um kvöldið er svo farið á sýningu Leikfélags Akureyrar – Birtíngur sem hefst kl. 20:00.
29. mars – sunnudagur
Morgunmatur og frjáls tími
Tékkað út kl. 11 töskur geymdar í rútu. Hádegismatur á eigin vegum og að því loknu er haldið á Listasafnið á Akureyri. Þegar heimsókninni er lokið er ekið aftur til Reykjavíkur.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Helgarferðir til Akureyrar með Steinþóri – mars 2026
Frá 195.800 kr.
/ Fullorðin