Í samstarfi við Þjóðræknisfélag Íslendinga bjóðum við einstaka ferð á slóðir íslenskra landnema í Vesturheimi í tilefni 150 ára afmæli íslenskra byggða á þessu svæði. Í ferðinni verður tekið þátt í fögnuði Vestur-Íslendinga í tveimur af helstu hátíðum þeirra: Íslendingahátíðinni „August the Deuce“ í Mountain, Norður-Dakóta í Bandaríkjunum, og Íslendingadeginum í Gimli, Manitoba í Kanada. Haldið hefur verið upp á báðar þessar hátíðir í meira en 100 ár. Á ferð okkar munum við heimsækja fjölmörg íslensk samfélög í Manitoba og Norður-Dakóta, skoða fallega náttúru svæðisins og kynnast einstökum menningararfi þessara byggða. Á leiðinni gefst okkur tækifæri til að hitta afkomendur íslenskra landnema og skyggnast inn í daglegt líf þeirra og menningu.
-
Kent Lárus Björnsson. Hann er kanadískur að uppruna en íslenskur í báðar ættir, stoltur Vestur-Íslendingur með íslenskt ríkisfang. Kent er menntaður leiðsögumaður og hefur á undanförnum árum leitt hópa í ferðalögum bæði um Ísland og víðs vegar um heiminn.
-
29. júlí - 8. ágúst 2025
-
437.400 kr
-
144.300 kr
-
109.350 kr
-
20. maí 2025 - greiðsluseðill kemur í heimabanka
Í dag dreifast afkomendur íslenskra landnema víða um Norður-Ameríku, en sérstaklega í Manitoba og Norður-Dakóta, þar sem tengsl við Ísland hafa verið varðveitt í gegnum hátíðir, félagsstarf og menningarviðburði. Ferðin verður því einstakt tækifæri til að upplifa þessa merku sögu, njóta samvista við afkomendur landnemanna og sjá áhrif íslensks arfs í menningu og samfélagi Vesturheims.
Fararstjórar og aðstoðarfólk:
- Fararstjóri ferðarinnar er Kent Lárus Björnsson. Hann er kanadískur að uppruna en íslenskur í báðar ættir, stoltur Vestur-Íslendingur með íslenskt ríkisfang. Kent er menntaður leiðsögumaður og hefur á undanförnum árum leitt hópa í ferðalögum bæði um Ísland og víðs vegar um heiminn. Honum til halds og trausts verður Hrannar Björn Arnarsson með í för. Hrannar er formaður Norræna félagsins, situr í stjórn Snorrasjóðs og hefur um árabil verið áhugamaður um sögu og menningu Íslendinga í Vesturheimi. Einnig mun formaður Þjóðræknisfélagsins, Pála Hallgrímsdóttir, taka þátt í hátíðarhöldunum ásamt fleiri stjórnarmeðlimum.