Jakobsvegur: síðustu 100 km – haust 2025

8 Dagar

**Nokkur pláss laus** Viltu njóta haustdaga á göngu í einu fallegasta héraði Spánar? Í þessari ferð göngum við síðustu 100 km frönsku leiðarinnar frá Sarria til Santiago de Compostela, um grónar sveitir Galisíu, þorp og bæi. Þetta er fullkomið tækifæri til að kynnast andrúmslofti pílagrímaleiðanna þar sem þessi leið er einn vinsælasti hluti frönsku leiðarinnar.

  • Elínborg Sturludóttir. Hún hefur mikla og farsæla reynslu í fararstjórn á pílagrímaleiðum á norður Spáni og Portugal.
  • 14.-21. september 2025
  • 359.900 kr
  • 70.000 kr
  • 89.975 kr
  • greiðist fyrir 31. júní 2025 - greiðsluseðill kemur í netbanka

Gönguleiðin er um fallegar sveitir, þorp og bæi Galisíuhéraðs. Gist er á gistihúsum og hótelum af ýmsum stærðum. Við njótum góðs matar að hætti heimamanna, smökkum mögulega á góðu víni … lifum og njótum.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Jakobsvegur: síðustu 100 km – haust 2025
Frá 359.900 kr.
/ Fullorðin