Kvennaferð: Jakobsvegur portúgalska strandleiðin – júní 2025

18 Dagar

‌Portúgalski Jakobsvegurinn liggur frá Lissabon um Porto til Santiago de Compostela. Hópurinn ætlar að ganga frá Porto til Santiago meðfram hvítum sand- og klettaströndum, um skógarstíga og sveitaþorp. Við munum njóta þess að finna lyktina af sumrinu, gæða okkur á góðum mat, rækta líkama og sál og njóta þess að vera til í góðum félagsskap og fallegu umhverfi.

  • Margrét Jónsdóttir Njarðvík, Elínborg Sturludóttir og Þórhalla Andrésdóttir. Aðstoðarkona: Anna Ingadóttir
  • 14. júní - 1. júlí 2025
  • 599.000
  • 110.000
  • Eftirstöðvar greiðast fyrir 30. apríl 2025 – greiðsluseðill kemur í netbanka
  • 149.750
  • 18

Heildarvegalengd er 300 km, dagleiðir eru 20-30 km.  Þátttakendur taki ábyrgð á því að þær hafi heilsu og úthald í þetta mikla göngu. Mögulega er hægt að taka leigubíl einhverja daga til að stytta göngu ef viðkomandi þarf á því að halda, en það er á kostnað þess sem gerir það. Anna aðstoðarkona í fylgdarbíl sér um að græja hádegismat og ýmislegt fleira, en sér ekki um að keyra þátttakendur milli staða, nema einhver verði veik. Gengið er í þögn fram að hádegi. Gengið er með léttan dagpoka. Farangur er trússaður á milli gististaða, ein taska (max 12 kg) á hvern þátttakanda.

Ferðin tekur samtals 18 daga. Fyrir utan ferðadaga til og frá Íslandi eru þetta 16 dagar, þar af 12-13 göngudagar með einum hvíldardegi inni á milli. Eftir komu til Santiago verður dvalið eina nótt þar og síðan farið til Finisterre (heimsenda), áður en haldið er aftur til Porto. Flogið er í beinu flugi frá Íslandi til Porto 14. júní og komið heim sömu leið 1. júlí. Rúmlega helmingur leiðarinnar er um Portúgal en síðari hluti göngunnar í  Galisíu á Spáni.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Kvennaferð: Jakobsvegur portúgalska strandleiðin – júní 2025
Frá 599.000 kr.
/ Fullorðin