Hreyfiferð til La Manga Mar Menor – september 2025

8 Dagar

**Nokkur pláss laus**
Langar þig að upplifa Spán og fara þangað sem flestir íslendingar hafa ekki komið og hreyfa þig í skemmtilegum hópi fólks? Við bjóðum upp á hreyfiferð til La Manga á Spáni með æfingum á allskonar erfiðleikastigi. Fyrir utan góða aðstöðu til hreyfingar og útiveru hefur La Manga upp á að bjóða veitingastaði, kaffihús/bari, fallega strönd og stutt er að ganga yfir á Cabo de Palos þar sem er viti og góðir veitingastaðir við höfnina. Við mælum sérstaklega með sjávarfangi á þessum slóðum, það kemur ferskt upp úr sjónum á hverjum einasta morgni. Ávextir og grænmeti ræktað í héraðinu – og annars staðar á Spáni – bragðast sérlega vel og við mælum með að smakka á lúxus ólífuolíu og góðum vínum úr héraðinu.

  • Hjördís Berglind Zebitz - einkaþjálfari, styrktarþjálfari og Zumba-kennari. Sissa Bjarglind - íþróttafræðingur.
  • 9.-16. september 2025
  • 269.900 kr
  • 70.000 kr
  • 92.000 kr
  • greiðist fyrir 28. júlí – greiðsluseðill kemur í netbanka

Murcia hérað er á Suðaustur Spáni og liggur fyrir sunnan Terrevieja, milli Valencia héraðs og Andalúsíu. Það liggur að Miðjarðarhafinu með 250 km af strandlengju sem kallast Costa Cálida, eða heita ströndin. Þetta er þurrasti hluti Spánar og þar rignir örfáa daga á ári. Í september er ennþá hlýtt, 20-25 gráður yfir daginn, sem hentar vel í svona ferð.

Mar Menor (Litli sjór) er salt sjávarlón við Costa Cálida ströndina, 170 ferkílómetrar að stærð. Lónið er tært og fallegt og gott að synda í því, fara í bátsferð eða bara njóta þess að rölta á ströndinni eða sóla sig. La Manga Mar Menor er fallegt svæði, annar tangi af tveimur sem lokar lóninu og þar er einmitt er hótelið sem við bjóðum upp á, fjögurra stjörnu, staðsett 200 m frá ströndinni. Frá því er flott útsýni yfir sjóinn, herbergin eru björt, með loftkælingu, svölum og sjónvarpi. Sundlaug og sundlaugargarður með sólbekkjum. Herbergin eru reyklaus, aðgengi fyrir hreyfihamlaða og veitingastaðurinn á hótelinu býður upp á góðan morgunmat – og kvöldmat fyrir þá sem vilja borða þar.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Hreyfiferð til La Manga Mar Menor – september 2025
Frá 269.900 kr.
/ Fullorðin