MUNDO og Vesen og vergangur kynna með ánægju fyrstu ferðina í samstarfi sín á milli, en allar þær ferðir eru að sjálfsögðu opnar öllum – ekki bara félögum í Veseni og vergangi.
Skíðafrí eru skemmtilegustu fríin. Við vöknum snemma og förum í kláfnum upp í fjall eftir morgunverðarhlaðborðið. Svo skíðum við í brekkum við hæfi, stoppum öðru hvoru í hressingu á hinum mörgu veitingastöðum í fjöllunum og tökum hádegismat. Eftir miðjan dag er skíðað niðureftir eða kláfur tekinn niður og farið í Aprés ski eða beint á hótelið og slakað á í heilsulindinni fram að kvöldmat. Svo er hressandi kvöldvaka og svefninn er einstaklega góður eftir alla hreyfinguna og útiveruna.
Við verðum með undirbúningsfund fyrir þátttakendur mánuði fyrir ferð og förum þá betur yfir útbúnað, undirbúning og fleira gagnlegt. Við verðum jafnframt með lokaðan hóp á Facebook þar sem skipst er á upplýsingum fyrir ferð og á meðan henni stendur. Einnig er upplagt að deila myndum í ferðinni og eftir hana.
-
Einar Skúlason - eigandi Vesens og Vergangs
-
7.-14. febrúar 2026
-
399.900 kr
-
ekki í boði nema borga fyrir tveggja manna herbergi
-
99.975 kr
-
greiðist fyrir 20. desember 2025 - greiðsluseðill kemur í netbanka
Við dveljum á Neue Post, 4 stjörnu hóteli í Mayrhofen og höfum aðgang að fleiri skíðasvæðum en heimasvæðinu ofan við Mayrhofen. Alls eru þetta yfir 180 skíðalyftur og 540 km af troðnum brekkum af öllu tagi sem tilheyra skíðapassanum. Við stefnum á að heimsækja önnur svæði eins og Hintertux jökulinn og Zillertal Arena. Þá hittumst við eitthvað í hádegismat uppi í fjalli og tökum eitt til tvö Aprés ski saman. Á kvöldin stefnum við á eina sleðaferð og tökum einnig kvöldvökur saman. Þetta verður allt saman kynnt betur á undirbúningsfundinum.
Fararstjóri aðstoðar farþega við að leigja skíði og bendir á leiðir til að bóka skíðakennslu.