Það er eitthvað heillandi við að ferðast um Jakobsveginn á Spáni. Þar gerist alltaf eitthvað merkilegt og hver og einn upplifir ferðina á sinn hátt – þetta er ferðalag sem sannarlega hefur breytt lífi margra.
Nánari upplýsingar hjá Margréti s. 691 4646 margret@mundo.is
Gönguferð um fyrstu 300 km á Pílagrímastígnum frá St. Jean Pied du Port til Burgos. Á þessari leið skiptast á hólar og hæðir, skógar, landbúnaðarhéruð, borgir og bæir – þessi ferð stendur svo sannarlega undir einkunnarorðum Mundo; menntun, skemmtun, menning og þjálfun. Þetta er ferð sem breytir lífi þínu. Að meðaltali eru gengnir 20-25 km á dag. Gistingin er allar tegundir af herbergjum en þó oftast tveggja manna, a.m.k. einu sinni mörg saman í stærri herbergjum til að upplifa ekta pílagrímastemmingu. Það er alltaf lín á rúmum, handklæði og sturta.