Hefurðu gaman að því að prjóna og kynnast siðum og menningu í öðrum löndum? Elskarðu að læra ný mynstur og láta reyna á prjónahæfileika þína? Þá er þessi ferð mögulega draumaferðin þín.
Fararstjóri er Dagný Hermannsdóttir.
Hún er handavinnukennari að mennt, forfallin handavinnukona og hefur séð um fararstjórn í prjónaferðunum við góðan orðstír.
Ferðatímabil: 2. – 9. júní 2023
Verð: 309.900 kr./mann miðað við tvo í herbergi.
Snemmskráningarafsláttur: 10.000 kr. (sé bókað fyrir 15. des 2022)
Aukagjald fyrir einbýli: 45.000 kr.
Staðfestingargjald: 80.000 kr. (óafturkræft nema ferð falli niður)
Fjöldi farþega: lágmark 18 – hámark 24
Eftirstöðvar greiðast 6 vikum fyrir brottför
Upplýsingar gefur Una Helga í s. 7784646 netfang: unahelga@mundo.is
Í Lettlandi sköpuðust einstakar hefðir í vettlingaprjóni. Hefðin var að ungar stúlkur prjónuðu fjöldan allan af vettlingum og söfnuðu í kistil til að eiga áður en þær gengu í hjónaband. Konur lögðu gríðarlegan metnað í að hanna mynstur og að prjóna einstaka vettlinga og munstrin voru fjölbreytt og full af táknum. Hefðin var að brúðurin færði brúðgumanum og fjölskyldu hans, presti og gestum vettlinga við giftingu. Vettlingar tengdust einnig alls kyns hjátrú og siðum og mismunandi hefðir sköpuðust milli héraða. Vettlingar urðu líka að gjaldmiðli og voru mikils metnir og gjarna notaðir sem greiðsla fyrir hitt og þetta. Skrautlegir vettlingar voru gjarna hengdir við belti sem skraut og eru mikilvægur hluti af þjóðbúningahefðum Letta. Í Lettlandi hafa því varðveist ótrúlega fjölbreytt og mörg vettlingamunstur sem m.a. má finna í bók Latvian Mittens eftir Maruta Grasmane. Enn í dag eru vettlingar mikils metnir í Lettlandi og áhersla lögð á að halda þekkingunni við og víða eru starfandi prjónahópar þar sem prjónarar geta lært hver af öðrum.
Í þessari ferð förum við í ævintýralega prjóna- og menningarreisu. Sitjum námskeið á ýmsum stöðum svo sem söfnum, byggðasöfnum, menningarsetrum, handverkshúsum og víðar, fáum kennslu frá lettneskum prjónakonum, fáum kynningar á siðum, söngvum, menningu og þjóðbúningum auk þess að smakka þjóðlegan mat og mun allt þetta gefa okkur innsýn inn í lettneska menningu. Í Sena Klets, sem er Þjóðbúningamiðstöð Lettlands hittum við Maruta Grasmane, höfund bókarinnar ,,Latvian Mittens“. Heimsækjum handverkshús og vinnustofur listamanna og víða gefst tækifæri til að kaupa prjónavörur og annað vandað handverk beint frá handverksfólkinu sjálfu.
Stærstan hluta ferðarinnar verðum við í Liepaja í héraðinu Kurzeme en þaðan eru varðveittir hvað flestir og skrautlegastir vettlingar.
Ferðin hefst í á frjálsum degi í Riga en Dagný mun leiða þau sem vilja í helstu og skemmtilegustu handverks- og prjónabúðirnar í bænum. Næsta dag verður farið á árlegan handverksmarkað stutt frá Riga sem haldinn er á nokkurs konar „Árbæjarsafni“ heimamanna. Þá tekur námskeiðið sjálft við og telur það fjóra heila daga í Liepaja. Lokadag ferðar, þann 9. júní, er svo ekið frá Liepaja út á flugvöll og flogið heim til Íslands kl. 10:45.
Föstudagur 2. júní
Flogið til Riga kl. 12:25 og lending í Riga kl. 19.05. Rútuferð heim á hótel í miðborg Riga og frjáls tími.
Laugardagur 3. júní
Við byrjum daginn í Senā Klēts en það er þjóðbúningastofa Letta og þar er gullfalleg verslun með vettlingum og öðru handverki er tengist þjóðbúningahefðum. Þar fáum við kynningu á starfsemi Senā Klēts og hittum Maruta Grasmane, höfund bókarinnar Mittens of Latvia (Þátttakendur á námskeiðinu fá bókina á sérstökum afslætti og einnig afslátt í versluninni). Utan þess er frjáls dagur í Riga og mun Dagný fara með áhugasama prjónara í helstu prjóna- og handverksbúðirnar í nágrenninu. Þá mun eigandi hinnar skemmtilegu verslunar HobbyWool bjóða þátttakendum afslátt (í búðinni má t.d. fá gott garn í vettlinga og tilbúna prjónapakka með uppskrift og garni) ásamt kynningu á bókum sínum, en hún er m.a. höfundur bókarinnar „Knit like a Latvian“.
Sunnudagur 4. júní
Ferð á árlegan handverksmarkað í útjaðri Riga þar sem handverksfólk víðs vegar að safnast saman, selur og kynnir vörur sínar, en markaðurinn hefur verið haldinn árlega á safninu frá árinu 1971. Um kvöldið verður farið í hátíðarkvöldverð á veitingastaðinn Gutenbergs en frá honum er frábært útsýni yfir borgina og alla fallegu turnana í nágrenninu (innifalið í verði ferðarinnar).
Mánudagur 5. júní
Kl. 9:00 Tékkað út af hóteli og haldið áleiðis til Liepaja í rútu. Stoppað í fallega miðaldabænum Kuldiga sem er útnefndur til heimsminjaskrár UNESCO.
Vinnustofa á bókasafni Kuldiga með handverksfólki frá listastúdíóinu „Čaupas“.
Kl. 15:00 Hádegisverður á veitingastaðnum Bangerts
Kl. 16:30 Brottför frá Kuldiga til Liepāja, en þar verður gist á Art Hotel Roma.
Kl. 20:00 Kvöldverður á veitingastaðnum Roma
Þriðjudagur 6. júní
Kl. 09:00 Gengið frá hóteli að handverksmiðstöðinni í Kungu stræti.
Vinnustofa: „Fléttuprjón og nálar“ leiðbeinandi er Rita Pogoska
Kl. 11:30 Kaffipása undir tónum þjóðlagasveitarinnar Atštaukas
Kl. 14:00 Hádegisverður
Kl. 15:00 Heimsókn í list- og handverksmiðstöðina Art & Craft Center „Dārza iela“
Kl. 16:00 Frjáls tími: hægt að kíkja á ströndina, kíkja í búðir, rölta um bæinn eða prjóna.
Kl. 20:00 Kvöldverður
Miðvikudagur 7. júní
Kl. 9:30 Gengið frá hóteli til Liepāja safnsins en þar verður vinnustofa dagsins. Einnig skoðum við sýningu um lettneska þjóðhætti, meðal annars myndarlegt safn af gömlum vettlingum.
Vinnustofa: „Fringes“ (kögur o.fl.). Leiðbeinandi: Sandra Brüna.
Stutt kynning á sokkabókinni „Suiti patterned socks“ eftir Lia Mona Ģibiete.
Kl. 14:00 Hádegisverður á veitingastaðnum Big Amber
Frjáls tími eða farið með Dagnýju í garnbúð í nágrenninu. Þar býðst okkur 10% afsláttur af öllu garni.
Frjáls tími
Kl. 20:00 Kvöldverður á veitingastaðnum PIANO
Fimmtudagur 8. júní
Kl 9:00 Rútuferð til Rucava.
Vinnustofa: „Rucava skeljakanntur“. Leiðbeinendur: Dace Liparte.
Kl. 14:00 Hádegisverður í „Zvanītāji“ sem er nokkurskonar lifandi sögusafn. Sandra Aigare kynnir safnið fyrir hópnum. Þar er einnig hægt að kaupa vettlinga sem meðlimir í handverkshóps staðarins hafa prjónað.
Þátttakendur fá með sér garn og uppskrift fyrir heimavinnu (litríkir vettlingar í fallegum áprentuðum taupoka frá SENĀ KLĒTS)
Kl. 20:00 Kvöldverður á veitingastaðnum Rosemary
Föstudagur 9. júní
Kl 5:15 tékkað út af hóteli í Liepaja
Kl. 5:45 Rúta sækir hópinn og ekur á flugvöllinn í Riga (komutími á flugvöll er um kl. 8:45)
Kl. 10:45 Beint flug frá Riga til Keflavíkur. Lending í Keflavík kl. 11:40
*Athugið að dagskrárliðir geta færst innan eða milli daga.