Ferðaskrifstofan Mundo býður áhugafólki um bókmenntir og ritlist upp á ritsmiðjunámskeið undir handleiðslu Auðar Jónsdóttur rithöfunds dagana 3. – 5. júní 2022. Námskeiðshelgin verður haldin á Siglufirði og er hugsuð fyrir þá sem vilja hlúa vel að sér á meðan drukkið er úr viskubrunni Auðar og verður boðið upp á útijóga, teygjur og afslappelsi í heitum potti hótelsins á milli þess sem þátttakendur læra af Auði og snæða gómsætan framandi mat. Ath. að námskeiðið hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum.
Á námskeiðinu leikur Auður með hugmyndina að skrifa til að skilja og sjá sögurnar í lífinu. Hún gefur ráð svo að fólk geti fengið frið fyrir of ágengri sjálfsgagnrýni í þessum efnum og skapað rými fyrir flæði hugans, skrifað ósjálfrátt, ef svo má segja. Hún mun jafnframt segja frá aðferðum við að byggja upp sögu og verður með nokkrar hvetjandi skrifæfingar í farteskinu, bæði æfingar í stíl og persónusköpun, og vonast til að geta styrkt sem flesta við að tileinka sér skrif, hvort sem þeir vilja skrifa skáldskap eða lifandi greinar. Athugið að námskeiðið hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum.
Fyrripart laugar- og sunnudags mun jógakennari leiða hópinn í jóga og teygjur utanhúss (ef veður leyfir) til að koma blóðinu af stað og stuðla að betra flæði hugans í ritæfingum dagsins. Á laugardagskvöldi verður svo boðið upp á þriggja rétta rjúkandi marokkóska ævintýraferð fyrir bragðlaukana að hætti kokksins.
Gist verður á hinu margrómaða “boutique” hóteli sem skreytt er málverkum eftir listakonuna Huldu Vilhjálmsdóttur, Hótel Siglunesi, og þýðir það að þú verður í fæði hjá kokkinum landsfræga Jaouad Hbib en hann er maðurinn á bak við marokkóska veitingastaðinn á hótelinu. Uppbókað var hjá honum svo til hvert einasta kvöld síðasta sumar en þessa helgi er staðurinn frátekinn fyrir þig! Hótelið býður upp á nærandi umhverfi sem mun án efa auka innblástur þátttakenda til skrifa auk þess sem náttúrufegurð Siglufjarðar spillir ekki fyrir og hægt er að slaka á í heita potti hótelsins á kvöldin eftir annasaman skriftardag. Hljómar það ekki vel?
Athugið að hægt er að lengja dvölina á Hótel Siglunesi og bjóðum við sérkjör á gistingu og mat. Vinsamlegast hafið samband við mundo@mundo.is hafir þú áhuga á því og við setjum saman pakka fyrir þig.
Ferðadagar: 3. – 5. júní 2022
Verð pr. mann:
Athugið að sams konar námskeið hafa verið styrkhæf hjá stéttarfélögum.
Dagskrá:
Föstudagur 3. júní:
Þátttakendur koma til Siglufjarðar, hægt er að tékka inn á hótel frá kl. 15:00 (ath. matur er ekki innifalinn þetta kvöld en hægt er að bóka borð á marokkóska veitingastaðnum, snæða á leiðinni eða fara á e-n hinna veitingastaðanna á Sigló).
Kl. 19:00 – 21:30 Ritsmiðjunámskeið
Laugardagur 4. júní:
Kl. 09:00 – 09:55 Morgunverður
Kl. 10:00 – 13:00 Ritsmiðjunámskeið
Kl. 13:00 – 13:30 Jóga og teygjur (utanhúss ef veður leyfir)
Kl. 13:30 Hádegismatur
Kl. 14:30 – 16:00 Ritsmiðjunámskeið
Kl. 16:00 – 20:00 Frjáls tími
Kl. 20:00 Þriggja rétta kvöldverður að hætti kokksins
Sunnudagur 5. júní:
Kl. 08:00 – 08:55 Morgunverður
Kl. 09:00 – 09:45 Jóga og teygjur (utanhúss ef veður leyfir, sniðugt að dýfa sér augnablik í pottinn eftir það)
Kl. 10:00 – 11:45 Ritsmiðjunámskeið
Námskeiði lokið og tékkað út af hóteli fyrir kl. 12:00