Skíðagöngunámskeið Mundo hafa verið feykivinsæl síðustu ár og hlotið mikið lof þátttakenda. Nú langar okkur til að bjóða gönguskíðafólki upp á nýjung, en það er skíðaævintýri með Þóru Tómasdóttur á Siglufirði!
ATH. skíðaævintýrið er einnig í boði í lengri útgáfu (fim-sun) helgina 29. apríl – 2. maí. Sjá hér: skíðaævintýri 29. apríl – 2. maí
Farnar verða tvær ferðir á utanbrautarskíðum/ferðaskíðum um helgina. Annars vegar verður farið frá Fljótum, yfir Lágheiðina og inn á Ólafsfjörð á laugardegi, og hins vegar út í Héðinsfjörð á sunnudegi, en náttúrufegurðin er engu lík á þessum leiðum. Þóra Tómasdóttir stýrir skíðaævintýrinu og verða heimamenn með í för, hópnum til halds og trausts.
Gist verður á hinu margrómaða “boutique” hóteli sem skreytt er málverkum eftir listakonuna Huldu Vilhjálmsdóttur, Hótel Siglunesi, og þýðir það að þú verður í fæði hjá kokkinum landsfræga Jaouad Hbib en hann er maðurinn á bak við marokkóska veitingastaðinn á hótelinu. Uppbókað var hjá honum svo til hvert einasta kvöld í sumar en þessa helgi er staðurinn frátekinn fyrir þig!
Gert er ráð fyrir að þáttakendur mæti seinni part föstudags, komi sér fyrir á hótelinu og setji sig í gírinn fyrir skíðaferðir helgarinnar. Á laugardagsmorgni smyrja þátttakendur sér hádegisnesti á hótelinu til að taka með í skíðaferð dagsins. Þátttakendur verða keyrðir í Fljótin og fara á skíðum yfir Lágheiðina inn á Ólafsfjörð. Þangað verður hópurinn sóttur aftur og keyrður yfir á Siglufjörð. Eftir gönguna verður farið í jóga í heitum sal og endað í rjúkandi, krydduðum þriggja rétta kvöldverð á marokkóska veitingastaðnum á hótelinu. Einnig mælum við sérstaklega með að skella sér í heita pott hótelsins um kvöldið til að ná úr sér síðasta hrollinum. Eftur morgunmat á sunnudagsmorgni fara þátttakendur svo á eigin bílum yfir í Héðinsfjörð og verður skíðað út þennan undurfallega eyðifjörð. Að þeirri ferð lokinni er formlegri dagskrá lokið (ath. þátttakendur þurfa ekki að tékka út af hóteli fyrr en kl. 14 til að sunnudagurinn nýtist betur).
Hægt er að lengja dvölina á Hótel Siglunesi og bjóðum við þá sérkjör á gistingu og mat. Vinsamlegast hafið samband við mundo@mundo.is hafir þú áhuga á því og við setjum saman pakka fyrir þig.
Athugið að skíðaævintýri þetta er fyrir þá sem hafa grunn á skíðum og hentar því ekki þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á gönguskíðum. Við bendum hins vegar á almennu skíðagöngunámskeið Mundo viljir þú læra á slíkt.
Innifalið:
Ferðadagar: 9. – 11. apríl 2021
Verð pr. mann: