Ferðaskrifstofan Mundo stendur fyrir árlegum skíðagöngunámskeiðum á Siglufirði um helgar í janúar, febrúar og mars, og hafa þau vakið gríðarlega lukku meðal þátttakenda. Enginn annar er ólympíufarinn á gönguskíðum, Elsa Guðrún Jónsdóttir, sér um að kenna þér allt sem þarf um gönguskíði í undurfagurri náttúru Norðurlands. Gist verður á hinu margrómaða “boutique” hóteli sem skreytt er málverkum eftir listakonuna Huldu Vilhjálmsdóttur, Hótel Siglunesi, og þýðir það að þú verður í fæði hjá kokkinum landsfræga Jaouad Hbib en hann er maðurinn á bak við marokkóska veitingastaðinn á hótelinu. Uppbókað var hjá honum svo til hvert einasta kvöld í sumar en þessar helgar er staðurinn frátekinn fyrir þig! Eftir laugardagsæfingar verður boðið upp á jóga í heitum sal, auk þess sem við mælum sérstaklega með að slaka á eftir langan dag í heita pottinum við Hótel Siglunes.
Þessi ferð er hönnuð fyrir þau sem vilja ævintýri, vilja læra almennilega á gönguskíði, vilja góðan félagsskap og hafa áhuga á ilmandi, hægelduðum mat í fallegu umhverfi. Athugið að þeir sem hafa komið á gönguskíðanámskeið hjá okkur áður fá 10% afslátt af verði námskeiðanna. Langi þig að lengja dvölina á Sigló og nýta það sem þú hefur lært á námskeiðunum getum við boðið sérkjör á gistingu og mat á Hóteli Siglunesi. Vinsamlegast taktu fram í pöntunarferli hvort þú hefur komið á skíðagöngunámskeið hjá Mundo áður, eða vilt bæta við gistinóttum.
Athugið að hér má skoða myndir og umfjallanir um herbergin á Hótel Siglunesi: https://www.hotelsiglunes.is/is/rooms
Vinsamlegast skráið nöfn þátttakanda í pöntunarkerfinu undir „Frekari upplýsingar“.
Helgar sem í boði eru og verð er eftirfarandi:
Ferðadagar: 27. – 29. jan 2023 (fös – sun)
Verð pr. mann:
Ferðadagar: 17. – 19. feb 2023 (fös – sun)
Verð pr. mann:
Ferðadagar: 9. – 12. mars 2023 (ath. fim – sun)
Verð pr. mann:
Ferðadagar: 17. – 19. mars 2023 (fös – sun)
Verð pr. mann:
ATH. vinsamlegast skrifið nafn herbergisfélaga í athugasemd í pöntunarkerfinu.