Bóka og greiða staðfestingargjald
Staðfestingargjald er 52.000kr./mann
Hefur þig lengi dreymt um að ganga Jakobsveginn? Getur verið að nú sé komið að því? Langar þig að njóta pílagrímagöngunnar í rólegheitum og hafa tíma til að skoða menningu, njóta náttúrunnar sem fyrir augu ber á leiðinni og læra spænsku til að geta bjargað þér?
Fararstjóri: Guðrún H Tulinius
Ferðatímabil: 15. júní til 22. júní 2024.
Verð: 255.000.-
Aukagjald fyrir einbýli: 60.000.-
Staðfestingargjald: 52.000.
Fjöldi farþega: lágmark 12 – hámark 20.
Þessi gönguferð er fyrir þá sem vilja njóta lífins á meðan síðastu 110 km Jakobsvegsings til Santiago er genginn. Gengið er um héruð þar sem skiptast á hólar og hæðir, skógar, landbúnaðarhéruð, borgir og bæir. Þessi ferð stendur svo sannarlega undir einkunnarorðum Mundo: menntun, skemmtun, menning og þjálfun. Hámarksvegalengdir eru 16 -22 km á dag, en sé komin þreyta í tærnar er alltaf hægt að hoppa upp í leigubíl til að komast á næsta gististað. Leiðin liggur um Galisíu, eitt
fallegasta hérað Spánar, frá bænum Sarria til Santiago de Compostela. Í Galisíu er allt grænt og vænt og sumarið vaknað úr dvala á þessum tíma. Farið er á milli lítilla þorpa og inn í nokkra bæi og er sums staðar gist tvær nætur í röð á sama stað þar sem farið er hægar en í venjulegum pílagrímagöngum.
Fararstjórinn Guðrún H Tulinius er fyrrum spænskukennari og verður fararstjóri göngunnar.
Drög að dagskrá göngudaganna: Eftir morgunverð um kl. 8:30 kynnum við okkur göngu dagsins og tökum léttar upphitunaræfingar. Ætlunin er að ganga 4-6 tíma á dag. Við tökum okkur gott matarhlé í kringum hádegið og göngum síðan til áfangstaðar. Þegar á gististað er komið, hvílir fólk sig fyrir kvöldverð, sem venjulega byrjar ekki fyrr en kl. 20 á Spáni.
Fyrir þau sem vilja verður boðið upp á spænskukennslu í lok göngudags, 3×40 mínútur á dag (3 kennslutímar). Stuðst verður við kennsluhefti í spænsku. Gistingin er hluti af upplifuninni þar sem hægt er. Það er alltaf lín á rúmum, handklæði og sturta og leitast er við að hafa gistinguna eins fjölbreytta og unnt er (klaustur, bændagisting og í það minnsta ein nótt verður á reglulega fínu hóteli).
15. júní
Flogið frá Íslandi til Portó, Eftir kvöldverð í Portó er ekið á upphafsstað ferðarinnar í Sarria.
16. júní
Gengið frá Sarria til Portomarín 21,5 km – hækkun 430m · lækkun 460m
17. júní – þjóðhátíðardagur
Gengið frá Portomarín til Ligonde 16 km – hækkun 368 · lækkun 130m
18. júní
Gengið frá Ligonde til Melide 21 km – hækkun 250m · lækkun 421 m
19. júní
Gengið frá Melide til Arzúa 13,5 km – hækkun 238m · lækkun 260 m
20. júní
Gengið frá Arzúa til O Pedrouzo 19 km – hækkun 227 m · lækkun 346 m
21. júní
Gengið frá O Pedrouzo til Santiago 20 km – hækkun 235 m · lækkun 136 m
22. júní
Síðdegis er ekið á flugvöllinn í Portó og flogið með Play kl 21:00