Portúgalski Jakobsvegurinn liggur frá Lissabon um Porto til Santiago de Compostela. Hópurinn ætlar að ganga fallegustu kaflana meðfram hvítum sand- og klettaströndum og um skógarstíga og sveitaþorp. Um ræðir 12 göngudaga með einum hvíldardegi eftir sex daga göngu. Haldið er af stað frá Íslandi þann 25. júní og komið heim 10. júlí. 60%leiðarinnar er í Portúgal en síðari hluti göngunnar er í Galisíu á Spáni.
Fararstjórar: Margrét Jónsdóttir, .
Ferðatímabil: 25. júní til 10. júlí 2024
Verð: 495.000.-
Aukagjald fyrir einbýli: 85.000
Staðfestingargjald: 110.000
Fjöldi farþega: lágmark 25 – hámark 35
25. júní – Ferðadagur
Flogið verður til Porto 25. Júní og okkur gefst færi til að skoða þessa næst stærstu borg Portúgals sem iðar af lífi.
26. júní – Göngudagur 1
Porto til Villa do Conde 15 km.
Við leggjum af stað snemma morguns tökum lest fyrst 11 km og göngum 20 km fyrsta göngudag.Þetta er mjög þægileg ganga á stígum alla leið og hækkunin er nánast engin.Við göngum fyrst meðfram Duero ánni sem er mikilvægasta vantnsæð Portúgals og rennur í gegnum Portó.Á göngunni verður farið í gegnum Foz do Duro sem er fallegt fiskiþorp staðsett við árós Duero árinnar.
27. júní – Göngudagur 2
Villa do Conde til Esposende 22 km.
Næsta göngudag er áfram gengið eftir þægilegum göngustígum með lítilli hækkun. Gjarnan er farið eftir tréplönkum yfir sandinum.
28. júní – Göngudagur 3
Esposende til Viana do Castelo. 22 km.
Eftir tvo langa byrjunar göngudaga ætti hópurinn að vera kominn í gott gönguform og verður þessi dagur til að njóta.
Þetta er léttur dagur þar sem áfram er gengið meðfram ströndinni í dásamlegu sjávarlofti og golu.
Við endum gönguna í Vianda do Castelo sem er fallegur bær með merkum byggingum og frábærum veitingastöðum.
29. júní – Göngudagur 4
Viana do Castelo – Vila Praia de Ancora. 14 km.
Fjórði göngudagur hefst með göngu út úr Viana de Castelo en dagleiðin liggur um dásamlega hlíð, eftir hellulögðum vegi og í gegnum undurfallegþorp. Gangan endar í Vila Praia de Ancora sem er þorp frá miðöldum, þekktur fyrir frábæra sjávarréttarstaði og sögufrægar byggingar.Caminha er síðasti áfangastaðurinn í Portúgal þar til siglt er yfir til Spánar.
30. júní – Göngudagur 5
Vila Praia de Ancora – San Benito. 23 km.
Dagurinn hefst með stuttri ferjusiglingu yfir ána Miño sem jafnframt myndar landamæri Portúgals og Spánar. Við göngum í gegnum Peludo og Oia og óvenju mikið á malbiki þennan dag meðfram ströndinni. Á þessum tíma árs er verið að undirbúahumarhátíðir í þorpum og bæjum og allar líkur á að hægt sé að smakka á humarsporði.
1. júlí – Göngudagur 6
San Benito – Oia 12 km.
2. júlí – Göngudagur 7
Oia – Ramallosa 19 km.
3. júlí – Hvíldardagur
Ramallosa
Það er komið að frídegi göngukvenna!
Þetta er dagur til að hvíla lúin bein, njóta, flatmaga á ströndinni og smakka á því sem veitingastaðir bæjarins hafa upp á að bjóða.
4. júlí – Göngudagur 8
Ramallosa til Vigo. 19 km.
Eftir góðan hvíldardag í Ramallosa er gott að halda í seinni hluta göngunnar og áfram er haldið meðfram ströndinni og endað í Vigo, bæinn sem minnir um margt á Bergen.
5. júlí – Göngudagur 9
Vigo – Redondella. 13 km.
6. júlí – Göngudagur 10
Redondella – Pontevedra. 19 km
Hér njótum við undurfagrar náttúru inni í landi og er leiðin sérstaklega falleg eftir Arcade.
7. júlí – Göngudagur 11
Pontevedra til Caldas de Reis. 21 km
Aftur njótum við undurfagrar náttúru og göngum eftir sveitavegum. Mælt er með 1,3 km krók til að skoða vatnsföllin íBarosa
8. júlí – Göngudagur 12
Caldas de Reis til Padrón. 17 km
Padrón þýðir risastór steinn eins og báturinn sem flutti líkamsleifar heilags Jakobs. Við nálgumst Santiago
9. júlí – Göngudagur 13
Padrón til Santiago 19 km
Líklegast er þetta minnst spennandi dagur göngunnar en löngunin til að koma til Santiago heldur okkur við efnið. Moldarstígar brjóta upp daginn.
10. júlí – Heimferðardagur
Lestarferð til Madrid og þaðan flogið með kvöldflugi til Keflavíkur