Balkantindar – júní 2026 **UPPSELT!**

14 Dagar

Ertu göngugarpur og langar að gera eitthvað nýtt og spennandi? Níu daga stórkostleg ganga í Albönsku Ölpunum, þar sem gengið er um þrjú lönd: Albaníu, Kosovó og Svartfjallaland. Á göngunni er gist í fjallaskálum, gistihúsum og heimagistingu, en á fjögurra stjörnu hóteli í Tirana. Ein nótt þar á undan göngu og tvær á eftir. Heildar vegalengd er um 160 km og uppsöfnuð hækkun rúmlega 8.000 m.

  • Birna María Þorbjarnardóttir ásamt innlendum fararstjóra. Útivist og gönguferðir eru stærsta áhugamál hennar og eftir að hafa heimsótt Balkanlöndin á gönguskónum með bakpokann þá eru þau í miklu uppáhaldi.
  • 24. júní - 7. júlí 2026
  • 492.500 kr
  • 20.000 kr (ekki í boði nema á hótelinu í Tirana)
  • 123.125 kr
  • greiðist fyrir 5. maí 2026 – greiðsluseðill kemur í netbanka
  • 10 - 16

Gönguferð um lítt þekktar slóðir Balkanfjallanna. Mikilfenglegt landslag, falleg náttúra, lítil fjallaþorp, stríðsminjar, einn fallegasti dalur fyrrum Júgoslavíu, hæsti tindur Kosovó umlukinn jökullónum. Allt þetta og margt fleira munum við sjá á göngunni.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Balkantindar – júní 2026 **UPPSELT!**
Frá 492.500 kr.
/ Fullorðin