Langar þig að lengja sumarið og hreyfa þig í skemmtilegum hópi fólks? Við bjóðum upp á hreyfiferð til Albufeira í Portugal með æfingum á allskonar erfiðleikastigi. Albufeira er falleg borg við suðurströnd Portúgals, þekkt fyrir hvítar sandstrendur og kristaltært haf. Gamli bærinn heillar með þröngum götum og hefðbundnum portúgölskum húsum. Borgin er vinsæll áfangastaður ferðamanna sem leita bæði afþreyingar og slökunar. Þar er líka fjölbreytt næturlíf og ljúffengir sjávarréttir á veitingahúsum. Fararstýrur ferðarinnar fóru með hóp til Spánar á sama tíma fyrir ári og óhætt að segja að gleðin í þeim hóp hafi verið mikil.
Umsagnir um ferðina 2025:
„Frábær ferð og skipulag gott. Við vorum í mjög góðum höndum hjá Sissu og Hjördísi, fyrir utan hvað þær voru bráð skemmtilegar. Það var hlustað og hægt að skipuleggja dagana vel eftir getu þar sem við vorum í allskonar formi. Æfingarnar á ströndinni voru frábærar og ennþá betri þegar aðrir strandmenn skelltu sér í æfingar með okkur.“ (kvk, 58 ára)
„Fór í ferðina 2025. Hún var æðisleg, skemmtilegur hópur og þær stöllur Hjördis og Sissa stýrðu henni hnökralaust. Þær sáu til þess að það var eitthvað fyrir alla, þá sem vildu taka vel á, minna á og svo gátu þeir sem það vildu hvílt þreyttar tær. Ég skemmti mér konunglega og mæli hikstalaust með svona ferð og er nokkuð ljóst að ég mun fara aftur.“ (kk, 70 ára)
„Ég má til að setja hérna nokkrar línur um hreyfiferð sem ég fór með Hjördísi og Sissu til Spánar. Allur hópurinn var yndislegur og skemmtilegt fólk, gott veður allan tímann. Það var sundleikfimi, Zumba, leikir, hjólað, farið á ströndina og allir saman út að borða. Ég lifi á þessari ferð ennþá, þetta var svo skemmtilegt. Knús á allan hópinn. Takk fyrir mig.“ (kvk, 80 ára)
** Síðasti dagur til að bóka/staðfesta í þessa ferð er 5. júní 2026 **
-
Hjördís Berglind Zebitz - einkaþjálfari, styrktarþjálfari og Zumba-kennari. Sissa Bjarglind - íþróttafræðingur.
-
12.-19. september 2026
-
349.900 kr
-
99.000 kr
-
87.475 kr
-
greiðist fyrir 31. júlí – greiðsluseðill kemur í netbanka
-
16-24
-
18
Sól, strönd og notalegur hiti. Alla daga er boðið upp á æfingadagskrá á allskonar erfiðleikastigi: Zumba og þrek í vatni (sundlaug) og á þurru landi, liðkunaræfingar, tekið á í ræktinni, gönguferðir og ýmislegt fleira. Svo má bæta við kajak, hjólaferð, SUP og fleiru. Eitthvað fyrir alla!
