Skemmtiskrif á Siglufirði – okt 2026

3 Dagar

Helgina 2.-4. október 2026 halda hjónin og rithöfundarnir Gerður Kristný og Kristján B. Jónasson námskeið í skemmtiskrifum á Hótel Siglunesi á Siglufirði. Þátttakendur verða leiddir inn í launkofa ljóðsins og spreyta sig á pistlaskrifum og sagnalist. Á námskeiðinu verður ímyndunaraflið virkjað og ljóð, pistlar og stuttar sögur skrifaðar. Markmiðið er að geta tjáð sig betur í rituðu máli og virkja sköpunarkraftinn sem býr í okkur öllum. Hvort sem ætlunin er að rita færslu á samfélagsmiðlum, grein í fjölmiðil eða flytja frumsamið ljóð þá býðst hér kærkomið tækifæri til að hefja leika í siglfirskum fjallasal.

  • 2-4. okt 2026
  • 88.900 kr. m.v. gistingu í tvíbýli
  • 11.000 kr.
  • 25% af heildarverði ferðar
  • Eftirstöðvar greiðast 4 vikum f. brottför – greiðsluseðill kemur í netbanka
  • 15-30
  • 18

Þátttakendur koma sér á staðinn á föstudegi og hefst námskeið kl. 17:00 undir handleiðslu Gerðar Kristnýjar og Kristjáns. Þá er tveggja rétta kvöldverður á veitingastað hótelsins og að honum loknum kvöldvaka þar sem afrakstur dagsins er lesinn upp.

Eftir morgunmat á laugardegi er æfing sem hefst kl. 9:30 og heit súpa og brauð í boði í hádeginu. Þá er næsta æfing milli 13 og 16 og tekur þá við frjáls tími þar sem þátttakendur fá tækifæri til að vinna sjálfir en geta kallað í námskeiðsstjóra sem verða í ritstjórahlutverki til kl. 18. Að kvöldi er þriggja rétta kvöldverður á veitingastað hótelsins og upplestur að honum loknum.

Á sunnudagsmorgni er morgunmatur og lokasamvera þátttakenda þar sem Gerður Kristný og Kristján verða með stuttan upplestur og námskeiðið er dregið saman. Hádegissnarl er svo í boði á hóteli þegar námskeiði lýkur.

ATH. Þeir sem vilja dvelja áfram á Hótel Siglunesi fram á mánudagsmorgun geta gert það sér að kostnaðarlausu. Þátttakendur eru því hvattir til að nýta sér lærdóm helgarinnar og fá innblástur fyrir skrif sín í haustfegurðinni á Siglufirði.

Gist er á hinu margrómaða „boutique hóteli“ Hótel Siglunesi, sem þýðir að þátttakendur verða í fæði á landsfrægum veitingastað hótelsins, sem er þekktur fyrir einstaklega gómsæta marokkóska rétti. Uppbókað er á honum svo til hvert einasta kvöld í sumar og fólk gerir sér sérferð á Siglufjörð til að borða matinn sem þar er reiddur fram.

Verð:
88.900 kr. per þátttakanda m.v. gistingu í tvíbýli
99.900 kr. per þátttakanda m.v. gistingu í einbýli

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Skemmtiskrif á Siglufirði – okt 2026
Frá 88.900 kr.
/ Fullorðin