Frábært vikunámskeið fyrir ungt fólk á menntaskólaaldri í samstarfi við CLIC málaskólann í Cádiz. Skólinn hefur haldið spænskunámskeið fyrir ungt fólk um árabil með frábærum árangri. Námskeiðin eru mjög vinsæl, spænskukennslan er framúrskarandi og alla daga er fjölbreytt dagskrá með afar góðu utanumhaldi. Þátttakendum er skipt í hópa eftir aldri og spænskukunnáttu ef einhver er.
Dvalið er hjá spænskum fjölskyldum til að kynnast enn betur spænskri menningu og tungumálinu. Unglingurinn er hluti af fjölskyldunni og þarf að fara eftir þeim reglum sem fjölskyldan og skólinn setur.
** Snemmskráningarafsláttur 15.000 kr (dregst frá lokagreiðslu) ef staðfest er fyrir 5. desember 2026**
-
Tekið á móti hópnum á flugvellinum í Málaga og vel haldið utan um hann allan tímann.
-
20.-27. mars 2027
-
299.000 kr
-
25% af verði ferðar
-
greiðist fyrir 5. febrúar 2027 - greiðsluseðill kemur í netbanka
-
10-12
-
16
-
19
Markmið ferðarinnar:
Spænskunám 20 stundir á viku í tungumálaskólanum CLIC sem hefur verið rekinn í fjölda ára um allan Spán. Kennslu er skipt í tvennt, málfræðireglur og talað mál. Nemendum er skipt í hópa eftir spænskukunnáttu.
Menningarupplifun með fjölbreyttri dagskrá á hverjum degi.
Kynnast spænskum fjölskyldum og ungmennum frá öllum heimshornum.
