Camino Francés er líklega vinsælasta leið Jakobsvegarins (Camino de Santiago), frá Saint-Jean-Pied-de-Port í Frakklandi og liggur til Santiago de Compostela á Spáni. Við ætlum í þessari ferð að ganga fyrstu 300 km; frá Astorga og alla leið inn á dómkirkjutorgið í Santiago de Compostela.
Heildarvegalengd er um 300 km, dagleiðir eru 18-30 km. Þátttakendur taki ábyrgð á því að þær hafi heilsu og úthald í gönguna. Mögulega er hægt að taka leigubíl einhverja daga til að stytta göngu ef viðkomandi vill og er það þá á eigin kostnað. Anna aðstoðarkona er með í fylgdarbílnum og sér um að græja hádegismat og ýmislegt fleira, en sér ekki um að keyra þátttakendur milli staða, nema upp komi veikindi. Elínborg er með innlegg á morgnanna fyrir göngu og er svo gengið í þögn fram að hádegi. Gengið er með léttan dagpoka og annar farangur er trússaður á milli gististaða, ein taska (max 12 kg) á hvern þátttakanda. Í lok göngudags sér Þórhalla um jóga og teygjur.
Snemmskráningarafsláttur (20.000 kr.) er veittur ef greitt er staðfestingargjald fyrir 15. nóv 2026.
Gisting er í látlausum tveggja manna herbergjum alla leið nema e-ð sérstakt komi upp á. Á nokkrum stöðum gætu allir þátttakendur þurft að vera í stærri herbergjum og á nokkrum stöðum er gist á betri hótelum.
18. júní er flogið er til Spánar með 1 millilendingu og ekið frá flugvelli til Astorga þangað sem við komum um kvöld. Þá taka við 11 göngudagar, 1 hvíldardagur á miðri leið og 1 hvíldardagur að göngu lokinni í Santiago. Að ferð lokinni er flogið heim þann 2. júlí með 1 millilendingu aftur til Íslands.
-
Margrét Jónsdóttir Njarðvík, Elínborg Sturludóttir, Þórhalla Andrésdóttir og Anna Ingadóttir
-
18. júní - 2. júlí 2027
-
619.900 kr.
-
109.900 kr.
-
25% af heildarverði ferðar
-
Eftirstöðvar greiðast fyrir 6. maí 2027 – greiðsluseðill kemur í netbanka
-
25-36
-
18
Innifalið:
- Flug frá Keflavík og heim aftur, 20 kg innrituð taska og lítil taska/bakpoki
- Akstur til og frá flugvelli á Spáni
- Gisting í gistihúsum og hótelum í 14 nætur m. morgunmat
- Hádegismatur á göngudögum - Anna töfrar fram hádegisverðarhlaðborð undir berum himni
- Trúss á farangri á milli gististaða, max 12 kg á hverja konu
- Pílagrímapassi
- Aflátsbréf í Santiago að göngu lokinni
- Frábær fararstjórn og Anna aðstoðarkona á hjálparbíl sem græjar hádegismat og bjargar þeim sem verða veikar
Ekki innifalið:
- Leigubílar til styttingar dagleiða fyrir einstaklinga
- Kvöldmatur og annar matur en upp er talinn í innifalið
- Hádegismatur aðra daga en göngudaga
- Drykkir
