Balkantindar – júní 2026

14 Dagar

Ertu göngugarpur og langar að gera eitthvað nýtt og spennandi? Níu daga stórkostleg ganga í Albönsku Ölpunum, þar sem gengið er um þrjú lönd: Albaníu, Kosovó og Svartfjallaland. Á göngunni er gist í fjallaskálum, gistihúsum og heimagistingu, en á fimm stjörnu hóteli í Tirana. Ein nótt þar á undan göngu og tvær á eftir. Heildar vegalengd er um 160 km og uppsöfnuð hækkun rúmlega 8.000 m.

  • Birna María Þorbjarnardóttir, sem hefur gengið þessa leið áður, ásamt innlendum fararstjóra
  • 24. júní - 7. júlí 2026
  • 492.500 kr
  • 20.000 kr (ekki í boði nema á hótelinu í Tirana)
  • 123.125 kr
  • greiðist fyrir 5. maí 2026 – greiðsluseðill kemur í netbanka

Gönguferð um lítt þekktar slóðir Balkanfjallanna. Mikilfenglegt landslag, falleg náttúra, lítil fjallaþorp, stríðsminjar, einn fallegasti dalur fyrrum Júgoslavíu, hæsti tindur Kosovó umlukinn jökullónum. Allt þetta og margt fleira munum við sjá á göngunni.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Balkantindar – júní 2026
Frá 492.500 kr.
/ Fullorðin