Gengnir verða síðustu ca. 130 km á portúgölsku leið Jakobsvegarins til Santiago en um ræðir 6 göngudaga og svo hvíldardag í Santiago að því loknu. Samtals 9 daga ferð með ferðadögum til og frá Íslandi. Yndisleg leið til að rækta líkama og sál í góðum félagsskap og fallegu umhverfi undir handleiðslu Valdimars og Berglindar sem stýra meðvirknipodcastinu.
Hjónin Valdimar Þór Svavarsson og Berglind Magnúsdóttir félagsráðgjafi hafa í meira en áratug verið að sinna ráðgjöf og meðferðarstarfi á mannlega sviðinu. Valdimar hefur komið víða fram, bæði í blöðum, útvarpi og sjónvarpi ásamt því að halda námskeið í fjölda fyrirtækja og stofnana, þar sem hann fjallar um ýmsar hliðar mannlegar tilveru. Berglind sinnir meðferðarvinnu á eigin stofu og notar ýmsar aðferðir, bæði hefðbundna samtalsmeðferð en ekki síður áhugaverðar nálganir, þar á meðal sérstaka öndunartækni sem hafa vakið mikla athygli þeirra sem til hennar hafa leitað. Saman halda þau úti Meðvirknipodcastinu – nýtt upphaf, sem er vinsælasta fræðsluhljóðvarp landsins.
Á meðan á göngunni stendur munu ferðafélagar fá upplífgangi fróðleik og innblástur frá þeim hjónum sem mun efla og hvetja andann. Berglind mun bjóða upp á ógleymanlega morgunstundir þar sem blandað er saman öndun og hugleiðslu sem hjálpar okkur að vera vel undir gönguna búin. Valdimar mun svo gefa okkur innsýn í þekkingu sem safnast hefur yfir árin, meðal annars í gegnum persónuleg verkefni í lífinu og hvað sú reynsla hefur kennt honum um tilgang lífsins og lífshamingjuna.
Það er óhætt að segja að gangan verði nærandi og ógleymanlegur tími með þessi hjón með í för.
-
Valdimar Þór Svavarsson og Berglind Magnúsdóttir, ásamt starfsmanni Mundo
-
22. - 30. september 2026
-
529900
-
66000
-
25% af heildarverði ferðar
-
Eftirstöðvar greiðast fyrir 11. ágúst 2026 – greiðsluseðill kemur í netbanka
-
16 - 30
-
18
Langar þig í nýtt upphaf á Jakobsvegi?
Gengið verður eftir portúgölsku leiðinni frá Baiona til Santiago de Compostela. Dagleiðir eru ca. 16 – 25 km og eru fyrstu tveir göngudagarnir með útsýni yfir hafið áður en komið er inn í Galisíu. Starfsmaður Mundo er með í för á bíl og sér um að taka á móti pílagrímum með hádegismat á göngudögum. Gengið er með léttan dagpoka en annars er farangur trússaður milli gististaða (taska má vera max 12 kg.). Að göngu lokinni er hvíldardagur í Santiago de Compostela áður en haldið er aftur heim til Íslands.
Ef þreyta sækir að pílagrímum er yfirleitt hægt að taka leigubíl á næsta gististað (á eigin kostnað).
