Japan – lúxusferð nóvember 2026

15 Dagar

Stórkostleg ferð til Japan þar sem við upplifum tímalausa fegurð fornra mustera og helgidóma sem eru staðsettir í og við líflegt borgarlíf Kyoto, Hakone og Tokyo. Hópurinn nýtur stórkostlegrar japanskrar matargerðar, allt frá götumatargleði til Michelin-stjörnu meistaraverka.  Japan er þekkt fyrir hlýju og gestrisni, þar sem aldagamlar hefðir mæta háþróaðri nýsköpun. Að finna augnablik æðruleysis í friðsælum görðum eða taka þátt í hrífandi orku iðandi gatna Tókýó er ógleymanleg upplifun. Japan er land óvenjulegra andstæðna, þar sem framtíð og fortíð fléttast óaðfinnanlega saman. Þetta er ferð sem mun skilja eftir ógleymanlegar minningar!

Athugið að í þessari ferð er nokkuð mikið gengið og þátttakendur þurfa að vera í nægilega góðu formi til að geta tekist á við það.

** Snemmskráningarafsláttur 23.000 kr (dregst frá lokagreiðslu) ef staðfest er fyrir 5. febrúar 2026 **

  • Sigmundur Páll Freysteinsson sem búið hefur í Japan og þekkir vel Japan og japanska menningu. Hann hefur farið með hópa til Japans fyrir Mundo við mikla ánægju þátttakenda
  • 18. nóvember - 2. desember 2026
  • 1.199.000 kr
  • 262.000 kr (aðeins tvö þannig herbergi í boði)
  • 25% af verði ferðar
  • greiðist fyrir 18. september 2026
  • 10-12
  • 18

Farðu ofan í hina ríkulegu japönsku arfleifð, skoðaðu samúræjakastala, geishahverfi og heilög musteri undir öruggri leiðsögn Sigmundar Páls Freysteinssonar sem nam textílhönnun í Kyoto.
Japan státar af einu áreiðanlegasta og skilvirkasta flutningskerfi heims og ótrúlega lága glæpatíðni, sem gerir landið öruggt fyrir ferðamenn.
Fyrri hluta ferðarinnar verður varið í Kyoto sem er hin forna höfuðborg Japans, borgin er full af sögu, menningu og stórkostlegri fegurð. Þetta er staður þar sem þú getur ráfað um friðsæl musteri, rölt um heillandi garða og upplifað einstakar hefðir sem hafa gengið í gegnum kynslóðir.
Eftir að hafa upplifað Kyoto fer hópurinn með hraðlest til fjallabæjarins Hakone sem er staðsettur í Fuji-Hakone-Izu þjóðgarðinum sem býður upp á einstaka blöndu af náttúruundrum, menningarverðmætum og slökun. Fuji fjallið blasir við frá bænum og þar eru heitir hverir og er bærinn þekktur fyrir einstök baðhús og verður eitt þeirra heimsótt.
Frá Hakone er aftur sest upp í hraðlest og er stefnan tekin á höfuðborgina Tokyo. Borgin er ólík öllum öðrum borgum þar sem heillandi blanda af fornum hefðum og nútíma undrum mætast og munu koma stöðugt á óvart.
Dvalið verður á hótelum í hæsta gæðaflokki og einungis farið á þannig veitingastaði. Þessi ferð er algjör lúxusferð!

Umsögn frá hópnum sem fór í samskonar ferð haustið 2025:
„Okkur langar að þakka kærlega fyrir einstaklega vel skipulagða og góða ferð með frábærum farastjóra til Japan.
Ferðin að okkar mati gekk mjög vel. Hótelin sem við gistum á og staðsetning þeirra voru mjög góð og flugið gekk vel fyrir sig.
Skipulagið og dagskráin var vel sett upp og val á veitingastöðum algerlega til fyrirmyndir og sýndi okkur virkilega japanska matarhefð og greinilegt að mikil og góð vinna Sigmundar við að finna réttu staðina skilaði sér vel.
Sigmundur stóð sig frábærlega og við getum varla mært hann meira. Hann svaraði endalausum spurningum og vangaveltum okkar, var yfirvegaður og fágaður, léttur og skemmtilegur. Hann aðstoðaði okkur í öllu sem við spurðum um hvort sem það var fyrir hópinn eða privat.
Við mælum eindregið með Mundo og Japansferð með Sigmund sem fararstjóra.“

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Japan – lúxusferð nóvember 2026
Frá 1.199.000 kr.
/ Fullorðin