Komdu með okkur á vit ævintýranna í undralandinu Kólumbíu! Páskaferð Mundo 2027 til Kólumbíu er einfaldlega stórkostleg upplifun! Landið er með eindæmum fallegt og fjölbreytt og hópurinn er lítill sem gerir upplifunina ánægjulegri og persónulegri á allan hátt. Við heimsækjum tvær borgir, Bogotá og Cartagena, sem eru fullar af lífi og einstökum karakter. Ennfremur kynnumst við litríkum og yndislegum þorpum í sveitasælu kaffihéraðanna ásamt því að skoða fjölbreytta náttúru og landslag svo sem rómantískar hæðir, gífurlega fallegt blómskrúð og draumkennda fossa, heimsins hæstu pálmatré og paradísareyjar.
Þegar fólk heyrir talað um Kólumbíu hvarflar hugurinn ósjálfrátt til eiturlyfjabaróna og gengjastríða. Sem betur fer hafa hlutirnir breyst til hins betra og Kólumbíumenn hafa lagt þetta erfiða tímabil að baki sér á 21. öldinni. Í kjölfarið hefur landið orðið æ vinsælla hjá ferðafólki sem verður einfaldlega ástfangið af fjölbreyttu landslaginu, litríku mannlífinu og einstöku andrúmsloftinu. Mörg geta líka tekið undir túrismaslagorðið “eina áhættan við að ferðast til Kólumbíu er að vilja ekki fara aftur heim”.
** Páskarnir eru háannatími í Kólumbíu og bóka þarf allt með miklum fyrirvara. Skráningarfrestur í þessa ferð er þess vegna til 10. september 2026 **
-
Anna Pála Stefánsdóttir er spænskukennari og leiðsögumaður með um 25 ára reynslu á báðum sviðum. Hennar helsta ástríða er að skipuleggja ferðir og hún nýtur þess í botn að ferðast og kynna fólk fyrir uppáhalds áfangastöðunum sínum. Hún veit ekkert skemmtilegra en að ferðast um Rómönsku-Ameríku og Kólumbía er klárlega uppáhalds áfangastaðurinn hennar.
-
18.-30. mars 2027
-
798.000 kr plús flug milli Íslands og Kólumbíu (Mundo sér um að bóka - áætlað verð 250-300 þús)
-
150.000 kr
-
25% af verði ferðar
-
Flugmiðar greiðast þegar hópurinn er fullbókaður. Lokagreiðsla 20. janúar 2027 - greiðsluseðill kemur í heimabanka.
Ferðatími er valinn með tilliti til sem ákjósanlegastra veðuraðstæðna og sem minnstum líkum á rigningu. Í Bogotá fer hitinn sjaldan yfir 20 gráður en í Cartagena má búast við um og yfir 30 stiga hita á þessum tíma. Í kaffihéruðunum er dæmigert hitastig 15-25 gráður og vanalega er notalega „passlegt” veður.
