Heiða Björk hjá Ást og friði, í samstarfi við Mundo.
Komdu með í útivistar og slökunarferð þar sem áherslan er á skemmtilega samveru með góðum hópi og heilsusamlegu mataræði. Yndisleg ferð á andalúsíska heilsubúgarðinn Casa Rural Ahora sem aldrei svíkur.
-
Fararstjóri er Heiða Björk Sturludóttir, leiðsögumaður, kennari, jógakennari, ayurveda sérfræðingur og næringarþerapisti. Henni til aðstoðar er Þröstur Sverrisson, umhverfissagnfræðingur og gönguleiðsögumaður.
-
21. - 28. maí 2026
-
265.000 kr
-
ekki í boði
-
25% af heildarverði
-
greiðist fyrir 9. apríl 2026
-
12-16
Mjúkt jóga úti í jógatjaldi, daglegar göngur meðfram ánni eða inní korskóginn, hugleiðslur, öndunaræfingar, jóga nidra leidd liggjandi djúpslökun í eftirmiðdaginn, fræðsla um ayurveda lífsvísindin, spjall um meltingu og næringu, krydd og jurtir, heilandi grænmetisfæði (egg og kindaostur líka í boði), nudd, slakandi og hreinsandi leirbað, söguspjall um arabana og berbana sem ríktu um aldir á Spáni, gaman saman út að borða í Gaucín, heimsókn á geitabúgarð, magnað tónbað með spænskum snillingum, og ekki má gleyma sólbaðinu! Eftir vikuna uppi í fjöllunum er hægt að njóta borgarinnar, fara á ströndina, láta líða úr sér í arabísku böðunum, fara á flamenco rölt eða heimsækja Picasso safnið svo eitthvað sé nefnt. Flug er ekki innifalið. Hver og einn kemur sér sjálfur til Malagaborgar þar sem hópurinn hittist 21. maí.
Ekki þarf að hafa reynslu af jóga til að taka þátt.
Komdu með í heilsueflandi ferð til Andalúsíuhéraðs á Spáni. Farið verður í göngur um fjöllin og korkskóginn, mjúkt jóga á morgnana í jógatjaldinu, yoga nidra leidd liggjandi djúpslökun á kvöldin, nudd og leirbað fyrir þá sem vilja.
Við höfum fræðsluspjall einn daginn um áhrif næringar á andlega og líkamlega heilsu út frá hinum fornu indversku lífsvísindum ayurveda og hver og einn fær aðstoð til að finna út sína meðfæddu líkamsgerð skv ayurveda fræðunum.
Ferðin hefst með stuttum göngutúr um miðbæ Malaga þaðan sem rúta er tekin upp í fjöllin og fyrstu nóttina er dvalið í hinu heillandi fjallaþorpi Gaucín sem er nærri El Colmenar þar sem fallegi heilsubúgarðurinn Casa Rural Ahora er staðsettur.
Í Gaucín notum við tækifærið og höfum söguspjall um márana á Spáni sem settu ærlegt mark sitt á landið með nær átta alda valdatíma sem einkenndist af blómstrandi menningu, framþróun í vísindum og efnahagslífi. Í Gaucín gefst tími til að skoða kastalann sem á rætur að rekja til tíma Rómverja en var mikilvægt virki á tíma máranna. Í Gaucín verður farið út að borða á veitingastað þar sem stórkostlegt útsýni gefur matnum aukið gildi, en hægt er að sjá ljósin í Afríku, hinum megin Gíbraltarsundsins í kvöldrökkrinu.

Næsta dag gerum við léttar æfingar fyrir morgunverð áður en lagt er af stað í langa göngu til þorpsins El Colmenar þar sem heilsubúgarðurinn Casa Rural Ahora er staðsettur. Þar verður síðan dvalið næstu sex nætur.
Við lítum á þessa viku í fjöllunum sem næringu fyrir líkama og sál, og máltíðirnar eru því heilsubætandi grænmetisréttir sem bæði eru afar ljúffengir og heilandi fyrir meltingarveginn og hreinsandi te í anda ayurveda er á boðstólnum eftir máltíðirþ
Athugið. Hver og einn kemur sér sjálfur til Malaga. Icelandair flýgur tvisvar í viku til Malaga og einnig er hægt er að fljúga til Madrid og taka hraðlestina þaðan til Malaga. Hraðlestin (El Ave) er mjög þægilegur ferðamáti.

Á staðnum eru jógamottur en gott er að koma með eitt teppi og púða með sér fyrir jóga nidra djúpslökunina á kvöldin. Ef pláss er í töskunni er líka sniðugt að stinga einum eða tveimur jógakubbum niður.
Skipt er um handklæði einu sinni eða tvisvar í viku á herbergjunum. WC pappír og náttúruleg sápa er á baðherbergjunum. það má nefna að sápan er framleidd á staðnum og algerlega laus við aukaefni. Þar sem þetta er svokölluð „sveita ferðamennska“ eða turismo rural, er ekki sami lúxusinn eins og á hótelherbergjum í borgum. Það er því ekki þrifið daglega og enginn ísskápur eða kaffi/te græjur inn á herbergjum og ekki loftkæling heldur viftur í hverju herbergi. Þetta er búgarður í miðri náttúrunni, við endimörk þorpsins El Colmenar sem er í Malaga héraði. Áin Guadiaro rennur fram hjá búgarðinum og í garði nágrannans eru oft kindur á beit rétt við jógatjaldið. Ávaxtatré þar sem vaxa sítrónur, appelsínur, nisperos og fleiri ávextir eru ræktuð á Casa Rural Ahora og er jógatjaldið í miðri þessari náttúrudýrð.

