Spænskunám fyrir 50 ára og eldri

14 Dagar

Í samvinnu við tungumálaskóla í Cádiz á Spáni, bjóðum við upp á spænskunámskeið fyrir 50 ára og eldri einstaklinga, hvort sem farið er á eigin vegum eða í hóp. Tilvalið tækfæri til að njóta lífsins, læra spænsku og upplifa spænska menningu, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n!

  • Námskeiðin eru tvær vikur og árið 2026 byrja þau á eftirfarandi dagsetningum: 16. febrúar, 23. mars, 20. apríl, 11. maí, 1. júní, 31. ágúst, 14. september, 12. október, 9. nóvember.
  • Verð frá 245.000 kr. f. 2 vikur
  • 50

Staðsetning og skóli:
Cádiz í Andalúsíu er ein elsta borg Evrópu. Borgin er því stútfull af sögu og dásamlegum gömlum byggingum við þröngar götur og falleg torg.  Löng hvít strandlengja með ferskum blæ Atlantshafsins liggur meðfram borginni. Skólinn er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni og er menningardagskráin seinni partinn haldin á 200 fm þaksvölum skólans.

MUNDO er í samvinnu við tungumálaskóla í Cádiz.
CLIC (International House)  er starfræktur í Málaga, Cádiz og Sevilla. Skóli með áratuga reynslu af spænskukennslu og sá stærsti í Andalúsíu,
Spænskukennsla er 20 tímar á viku, 4 x 50 mín kennslustundir á dag frá 9.15- 13.00 og skiptist í 2 tíma í málfræði og 2 tíma í töluðu máli. 
Auk þess er fjölbreytt dagskrá 4 virka daga í eftirmiðdaginn vikulega s.s, söguferðir, flamenco, hjólaferðir, vínsmökkun, paella-námskeið o.fl. Þá er einnig í boði að fara í valkvæða ferð til nálægra borga, t.d. Seville eða Jerez de la Frontera, á laugardögum (ath. kostar aukalega).
Skólarnir reka húsnæði rétt við skólana og leigja út bæði litlar stúdíóíbúðir og herbergi með sameiginlegu eldhúsi og baði. 

Námskeiðin eru tvær vikur (komið á sunnudegi og farið á laugardegi) og árið 2026 byrja þau á eftirfarandi dagsetningum: 16. febrúar, 23. mars, 20. apríl, 11. maí, 1. júní, 31. ágúst, 14. september, 12. október, 9. nóvember.

Verð í spænskunámskeið og gistingu fer eftir hvort gist er í stúdíóíbúð eða herbergi með aðgengi að eldhúsi/baði.

Verð m.v. gistingu í einstaklingsstúdíó = 285.000 kr. f. 2 vikur (aukakostnaður á „high season“ (júní, júlí, ágúst og september) er 42.000 kr.)
Verð m.v. gistingu í einstaklingsherbergi = 245.000 kr. f. 2 vikur (aukakostnaður á „high season“ (júní, júlí, ágúst og september) er 10.000 kr.)

Mundo getur aðstoðað við að bóka flug (þægilegast er að fljúga til Malaga) og tekur 5.000 kr. bókunargjald fyrir það. Þátttakendur koma sér svo til Cádiz á eigin vegum en einnig er hægt að fá skólann til að sækja á flugvöllinn í Malaga og kostar það 260 EUR hvora leið.


Hafið samband við mundo@mundo.is fyrir einstaklingsferðir og/eða beiðni um ferðir í hópum.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Spænskunám fyrir 50 ára og eldri