Langar þig í heillandi gönguferð þar sem þú upplifir töfrandi samspil austurs og vesturs, ríka sögu, lifandi menningu og stórbrotna náttúru í hverju skrefi? Þá er þessi ferð fyrir þig!
Sarajevo er dásamlega fjölbreytt og skemmtileg borg þar sem margvíslegir menningarstraumar gleðja gesti. Hún var upphaflega stofnuð af Ottoman Tyrkjum og var eins konar hlið til Istanbúl og Austurlanda. Þrátt fyrir yfirgnæfandi hlut múslima framan af þá var trúfrelsi iðkað og ofsóttum gyðingum á Spáni boðið að setjast að líkt og öðrum trúarhópum. Á tímum Austuríska-Ungverska keisaradæmisins þá fjölgaði kaþólskum mikið í borginni og rétttrúnaðarkirkjan hefur ávallt verið hluti af borginni að auki. Allt hefur þetta stuðlað að því að búa til fjölbreytta menningu, líflega markaði, alls konar veitingastaði og flóru sem er skemmtilegt að fylgjast með þegar gengið er um götur borgarinnar.
** Síðasti dagur til að bóka/staðfesta í þessa ferð er 10. maí 2026 **
-
Einar Skúlason, stofnandi Vesens og Vergangs, ásamt Fikret Kahrovic sem er fæddur og uppalinn í Sarajevo. Hann hefur starfsrækt gönguhópa og leitt fólk um fjöllin í nágrenni Sarajevo frá unga aldri, svo skemmir ekki að hann er stórskemmtilegur og með góðan húmor.
-
12.-20. september 2026
-
367.900 kr
-
60.000 kr
-
25% af verði ferðar
-
í síðasta lagi 30. júlí 2026
-
16-30
Í dagskránni hefur verið stillt upp gönguferðum fyrir sex göngudaga, ekki er þó víst að göngurnar verði í þessari röð, en þar fyrir utan er einn frídagur sem er frjáls til að skoða borgina. Við gistum ávallt á sama stað og því er einfalt að sleppa göngu ef einhver vill hvíla eða gera eitthvað annað þann daginn. Athugið að göngudagskrá gæti breyst út frá veðri, aðstæðum eða formi gönguhópsins.
Flogið með einni millilendingu frá KEF til Sarajevo. Rúta sækir hópinn á flugvöllinn og ekur á Hotel Central Sarajevo. Það er miðsvæðis í borginni og stutt að ganga að helstu stöðum í miðborginni.
Við nýtum okkur almenningssamgöngur og förum svo upp með kláfnum sem var eyðilagður í Bosníustríðinu en endurbyggður og tekinn aftur í notkun árið 2018. Þetta er leiðin að bobsleðabrautinni þar sem keppt var á vetrarólympíuleikunum árið 1984. Gangan hefst eftir að við yfirgefum kláfinn og göngum um fallega skóga alla leið á Sofe tindinn (1629 m) þaðan sem er mjög fallegt útsýni yfir Sarajevó og fjöllin í kring. Á leiðinni göngum við á vegi sem var lagður í tíð austurrísk-ungverska keisaradæmisins, skoðum fjallaskála sem var byggður 1893 og í bakaleiðinni annan sem er heldur nýrri. Allan gönguhringinn förum við um þægilega stíga og njótum fallegs umhverfis og tökum svo kláfinn aftur niður til Sarajevó.
Erfiðleikastig: miðlungserfið. Hækkun: 700 m. Göngutími: u.þ.b. 5 klst.
Í dag höldum við áfram að kynnast næsta nágrenni Sarajevó og tökum strætó í útjaðar hennar. Göngum svo til baka um nokkur þorp og hæðir og endum í gamla bænum í Sarajevó. Við hefjum göngu í þorpinu Faletici og fylgjum stígum um opin svæði og skóga að fallega þorpinu Gornje Biosko. Þaðan göngum við um skógarstíga upp á Pjescana Ravan og þaðan niður til þorpsins Barice. Á leiðinni niður í átt að gamla bænum munum við skoða minnismerki og stríðsminjar úr Bosníustríðinu.
Erfiðleikastig: miðlungserfið (soft hike). Hækkun: 550 m. Göngutími: 3,5 – 4,5 klst.
Við förum um austurhlíðar Visocica fjalls, sem tilheyrir Bjelimici fjallgarðinum, og á tindinn Kom (1778 m) og hugsanlega einnig á tindinn Crveni kuk (1733 m). Útsýni er mikið á þessum slóðum, ekki mikið af trjám en töluvert af blómum og bláberjum. Við keyrum fram hjá þorpinu Sinanovici og fáeina kílómetra í viðbót að Oštra Bara og hefjum göngu þar í 1600 m hæð. Á toppnum er fallegt útsýni til fjalla eins og Treskavica, Zelengora, Crvanj og Velez. Rútuferð að upphafsstað göngu eru tæpir 50 km.
Erfiðleikastig: miðlungserfið - meira krefjandi ef einnig er gengið á Crveni kuk. Hækkun: 400 m (550 m á tindinn Crveni kuk). Göngutími: ca 3,5 klst (4,5 klst. með tindinum Crveni kuk).
Um kvöldið verður sameiginlegur kvöldverður á veitingastað í nágrenni hótelsins.
Við tökum rútu að morgni og keyrum um 50 km leið. Við hefjum göngu í hinu fallega þorpi Umoljani og stoppum við Sedrenik lindirnar sem þorna aldrei. Þaðan göngum við að Orlovac og njótum útsýnis yfir Rakitnica gljúfrið, þorpið Bobovica og fjöllin Treskavica (2088 m), Bjelasnica (2067 m) og norðurhlíðar fjallsins Visocica. Þaðan förum við um Studeni Potok dalinn sem margir listamaðurinn hefur málað, skoðum Gradina þorpið og endum aftur í Umoljani þorpinu þar sem við fáum okkur hádegismat á veitingastað. Á leið aftur til Sarajevó stoppum við í Dolovi og skoðum merkilega bauta- og minningarsteina frá miðöldum en slíkir steinar voru algengir í Bosníu áður en Ottómanveldið náði völdum í landinu. Hugsanlega verður einnig stoppað til að skoða stríðsminjar og skíðabrautir frá Ólympíuleikunum 1984.
Erfiðleikastig: létt. Hækkun: 200 m. Göngutími: u.þ.b. 4 klst.
Krvavac tindurinn er 2062 m að hæð og næst hæsti tindurinn á Bjelasnica fjallgarðinum. Við hefjum göngu í 1300 m hæð og göngum um hlíðar þar sem furutré eru algeng sjón og upp á gróðurvana Greda hásléttuna (1750 m) og þaðan upp á topp. Þaðan er sérstaklega gott útsýni til austurs og fjallanna í suðri þar á meðal í átt að Lukomir og fjallinu Prenj, alls Bjelasnica fjallgarðsins og fjallahringsins umhverfis Sarajevó.
Þetta flokkast sem krefjandi ganga enda er hækkunin 900 m og göngutími er áætlaður sjö klukkutímar. Tökum rútu og keyrum um 50 km að upphafsstað göngu.
Erfiðleikastig: krefjandi. Hækkun: 900 m. Göngutími: u.þ.b. 7 klst.
Síðasta göngudaginn förum við aftur um útjaðar Sarajevó. Við tökum strætó til þorpsins Barice (950 m) og inn á Mrkovici svæðið þar sem við komum við í fjallaskálanum Cavljak. Þaðan förum við í fjallgöngu með viðkomu á tindinum Brestovac (1413 m) og eftir fjallshrygg með Orlovac tindinum. Förum þaðan niður að Borovac svæðinu og endum í Nahorevo þorpinu þaðan sem við tökum aftur strætó í bæinn.
Erfiðleikastig: meðalerfið (soft hike). Hækkun: 500 m. Göngutími: u.þ.b. 4,5 - 5 klst.
Á þessum degi er upplagt að skoða borgina, fara á markaðina, stríðsminjasöfn eða hreinlega bara setjast á kaffihús og slaka á.
Rúta ekur hópnum á flugvöllinn í Sarajevo. Flogið með einni millilendingu frá Sarajevo til KEF.
