Páskaferð Mundo til Kólumbíu er einfaldlega stórkostleg upplifun! Landið er með eindæmum fallegt og fjölbreytt og hópurinn er lítill sem gerir upplifunina ánægjulegri og persónulegri á allan hátt. Við heimsækjum hina fögru borg Cartagena sem er full af lífi og einstökum karakter og svo kynnumst við litríkum og yndislegum þorpum í sveitasælu kaffihéraðanna. Við skoðum fjölbreytta náttúru og landslag svo sem rómantískar hæðir, gífurlega fallegt blómskrúð og draumkennda fossa, heimsins hæstu pálmatré og paradísareyjar.
Cartagena er vinsæll áfangastaður skemmtiferðaskipa og kaffihéruðin eru á friðsælu ferðamannasvæði sem hafa hvorki neitt að gera með pólítísk átök né glæpagengi. Þessi svæði eru örugg fyrir ferðamenn og tekið er vel á móti öllum.
Á 21. öldinni með auknu öryggi hefur Kólumbía orðið æ vinsælli hjá ferðafólki sem verður einfaldlega ástfangið af fjölbreyttu landslaginu, litríku mannlífinu og einstöku andrúmsloftinu. Íslendingar eiga enn eftir að uppgötva þennan undrastað og langar okkur mikið til að opna augu þeirra fyrir þeim dásemdum sem landið hefur að geyma.
Komdu með okkur á vit ævintýranna í undralandinu Kólumbíu!
** Páskarnir eru háannatími í Kólumbíu og bóka þarf allt með miklum fyrirvara. Skráningarfrestur í þessa ferð er þess vegna til 10. september 2026 **
-
Anna Pála Stefánsdóttir er spænskukennari og leiðsögumaður með um 25 ára reynslu á báðum sviðum. Hennar helsta ástríða er að skipuleggja ferðir og hún nýtur þess í botn að ferðast og kynna fólk fyrir uppáhalds áfangastöðunum sínum. Hún veit ekkert skemmtilegra en að ferðast um Rómönsku-Ameríku og Kólumbía er klárlega uppáhalds áfangastaðurinn hennar.
-
19.-30. mars 2027
-
798.000 kr plús flug milli Íslands og Kólumbíu (Mundo sér um að bóka - áætlað verð 250-300 þús)
-
150.000 kr
-
25% af verði ferðar
-
Flugmiðar greiðast þegar hópurinn er fullbókaður. Lokagreiðsla 20. janúar 2027 - greiðsluseðill kemur í heimabanka.
-
10-14
Ferðatími er valinn með tilliti til sem ákjósanlegastra veðuraðstæðna og sem minnstum líkum á rigningu. Í Cartagena má búast við um og yfir 30 stiga hita á þessum tíma en í kaffihéruðunum er dæmigert hitastig 15-25 gráður og vanalega er notalega „passlegt” veður.
