Prjónað með Dagnýju: Ævintýri í Lettlandi – haust 2026 – ÖRFÁ SÆTI LAUS

7 Dagar

Hefurðu gaman að því að prjóna og kynnast siðum og menningu í öðrum löndum? Elskarðu að læra nýjar aðferðir og tækni? Viltu verja tíma með fólki með sama áhugamál? Þá er þessi ferð mögulega draumaferðin þín.

Í þessari ferð förum við í ævintýralega prjóna- og menningarreisu. Sitjum námskeið á ýmsum stöðum svo sem söfnum, byggðasöfnum, menningarsetrum, handverkshúsum og víðar, lærum af lettneskum prjónakonum, fáum kynningar á siðum, söngvum, menningu og þjóðbúningum auk þess að smakka þjóðlegan mat og mun allt þetta gefa okkur innsýn inn í lettneska menningu. Heimsækjum handverkshús og vinnustofur listamanna og víða gefst tækifæri til að kaupa prjónavörur og annað vandað handverk beint frá handverksfólkinu sjálfu. Ferðirnar eru unnar í samstarfi við  þjóðbúningamiðstöðina Senā Klēts í Riga en stofnandi hennar er Maruta Grasmane höfundur ,,Mittens of Latvia“. Verkefnastýra Sena Klets, Ziedite Muzis er með okkur stóran hluta ferðarinnar en hún er sérfræðingur í öllu sem viðkemur lettneskum þjóðbúningum og handverki tengdu þeim.

ATH. 20.000 KR. SNEMMSKRÁNINGARAFSLÁTTUR ER VEITTUR EF BÓKAÐ ER FYRIR 5. FEBRÚAR 2026

Gott að vita

  • Dagný Hermannsdóttir. Hún er handavinnukennari að mennt, forfallin handavinnukona og hefur séð um fararstjórn í prjónaferðunum okkar við góðan orðstír.
  • 31. ágúst - 6. september 2026
  • 399.900
  • 39.000
  • fyrir 19. júlí 2026 - greiðsluseðill sendur í heimabanka
  • 25% af heildarverði ferðar
  • 18-24

Í Lettlandi sköpuðust einstakar hefðir í vettlingaprjóni. Hefðin var að ungar stúlkur prjónuðu fjöldan allan af vettlingum og söfnuðu í kistil til að eiga áður en þær gengu í hjónaband.  Konur lögðu gríðarlegan metnað í að hanna mynstur og að prjóna einstaka vettlinga og munstrin voru fjölbreytt og full af táknum. Hefðin var að brúðurin færði brúðgumanum og fjölskyldu hans, presti og þeim sem höfðu hlutverk í athöfninni eða veislunni vettlinga við giftingu.  Vettlingar tengdust einnig alls kyns hjátrú og siðum og mismunandi hefðir sköpuðust milli héraða. Vettlingar urðu líka að nokkurs konar gjaldmiðli og voru mikils metnir og gjarna notaðir sem greiðsla fyrir hitt og þetta. Skrautlegir vettlingar voru gjarna hengdir við belti sem skraut og eru mikilvægur hluti af þjóðbúningahefðum Letta.  Í Lettlandi hafa því varðveist ótrúlega fjölbreytt og mörg vettlingamunstur. Enn í dag eru vettlingar mikils metnir í Lettlandi og áhersla lögð á að halda þekkingunni við og víða eru starfandi prjónahópar þar sem prjónarar geta lært hver af öðrum.

Stærstan hluta ferðarinnar dveljum við í indælum strandbæ sem heitir Liepaja og er í Kurzeme héraði, en þaðan eru varðveittir hvað flestir og skrautlegastir vettlingar. Við prjónum á nýjum stað á hverjum degi, kynnumst menningu og lærum um prjónahefðir. Við endum svo ferðina í Riga þar sem við förum á stærsta handverksmarkað ársins og heimsækjum helstu og skemmtilegustu garn- og prjónabúðir í Riga. Það verður gert vel við okkur í mat og er hann innifalinn í verði utan tveggja hádegisverða og tveggja kvöldverða í Riga.

ATH. 20.000 KR. SNEMMSKRÁNINGARAFSLÁTTUR ER VEITTUR EF BÓKAÐ ER FYRIR 5. FEBRÚAR 2026

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Prjónað með Dagnýju: Ævintýri í Lettlandi – haust 2026 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Frá 399.900 kr.
/ Fullorðin