Perúævintýri með Önnu Pálu – júní 2027

18 Dagar

Í þessari ævintýraferð ætlum við að skoða vel mismunandi svæði hins ótrúlega fjölbreytta og fallega lands Perú. Við göngum hina vinsælu stuttu Inkaleið að Machu Picchu (sjá nánar neðar á síðunnu), njótum lífsins í litríku borginni Cusco og skoðum rústir, náttúru og markaði í hinum fagra Heilaga dal.

En Perú er svo mikið meira en bara Cusco og nágrenni og algjör synd að láta hér við sitja! Við ætlum því einnig að rannsaka Amazonfrumskóginn með sínum fjölbreytta gróðri og ótrúlega dýralífi, heimsækja hvítu borgina Arequipa sem er á heimsminjaskrá UNESCO og Colca gljúfrið mikilfenglega sem er jafnframt heimkynni hinna stórkostlegu Andeskondóra. Ekki má gleyma höfuðborginni Lima, en þar munum við skoða hið ómissandi Larco safn þar sem úir og grúir af merkilegum fornminjum og skella okkur svo á matreiðslunámskeið!matarmenningu.

Leyfi til að ganga Inkastíginn þarf að panta með nafni og vegabréfsnúmeri, ekki er hægt að taka frá fyrir „nafnlausan“ hóp og því þurfum við að vera snögg að ganga frá skráningu í þessa ferð. Sama gildir fyrir innanlandsflugin, og því er lokadagur að staðfesta í ferðina 5. desember 2026.

  • Anna Pála Stefánsdóttir spænskukennari og leiðsögumaður með um 25 ára reynslu á báðum sviðum. Hennar helsta ástríða er að skipuleggja ferðir og hún nýtur þess í botn að ferðast og kynna fólk fyrir uppáhalds áfangastöðunum sínum. Hún veit ekkert skemmtilegra en að ferðast um Rómönsku-Ameríku.
  • 2.-20. júní 2027
  • 999.000 kr plús flug milli Íslands og Perú (Mundo sér um að bóka - verð áætlað 270-300 þús)
  • 175.000 kr
  • 25% af verði ferðar
  • Flugmiðar greiðist þegar flug er bókað. Lokagreiðsla 2. apríl 2027.
  • 10-14

Hvað er stutti Inkastígurinn?

Í hinum klassísku 4ra daga Inkastígsferðum er gengið í 3 daga í 43 km, gist í Aguascalientes og fjórði dagurinn er tekinn í að skoða Machu Picchu með leiðsögn morguninn eftir. 
Í stuttu ferðinni er einn göngudagur sem lítur svona út:
Gengið er upp í móti í átt að Inkastígnum sem farinn er á degi 3 í hefðbundnu ferðinni og er einn fallegasti partur leiðarinnar. Göngufólk gengur upp með undraverðan gróður þokuskógarins á báðar hendur, að fallegustu rústunum á Inkastígnum Wiñaywayna.
Við gæðum okkur á dýrindis hádegismat á tjaldstæðinu þar nálægt og höldum svo eftir sjálfum Inkastígnum, gegnum sólarhliðið þar sem við berjum Machu Picchu fyrst augum! Eftir það göngum við niðureftir til að fá betra útsýni yfir þennan magnaða stað og tökum myndir í bak og fyrir!
Stutta gangan er 13 km og tekur með öllu innföldu um 7-8 klst. Hækkunin er 800 metrar, svipuð og upp að steini í Esjunni, en athugið að við hefjum gönguna í svipaðri hæð og á toppi Hvannadalshnjúks! Í göngunni fáum við smjörþefinn af tröppunum endalausu og náttúrufegurðinni við stíginn. Við tökum svo daginn eftir í að skoða týndu borgina gaumgæfilega, líkt og í hinum klassísku Inkastígsferðum. 
Þessi kostur er góður fyrir fólk sem langar í göngu en finnst hefðbundna gangan heldur löng, sefur ekki vel í tjaldi og finnst ekki heillandi að ganga upp og niður 10.000 tröppur í 43 km. Í stuttu göngunni hefjum við gönguna í ca. 2000 metrum og förum hæst í rúmlega 2700 metra við sólarhliðið en í hefðbundnu ferðinni byrjar gangan í 2.600 metrum og fer hæst upp í 4.215 metra.
Hæð fer illa í sumt fólk, meira að segja heilsupinna í súpergóðu formi þannig að minni hætta er á vanlíðan í stuttu Inkagöngunni, auk þess sem við höldum svo beint á hótel í góða hvíld eftir gönguna og gistum í „einungis“ rúmlega 2000 metra hæð.
Ef það passar ekki ferðalöngum að fara í neina göngu og það vill bara vera með í að skoða Machu Picchu er það guðvelkomið og vel mögulegt. Þá fær fólk frjálsan tíma í Aguascalientes sem er líflegur bær, og við græjum að þau fái að heimsækja hæsta svæðið í Machu Picchu þar sem gönguhópurinn mun koma niður til að við getum öll hist og fagnað útsýninu saman.

Tekið skal fram að stutta Inkagangan er samt langt frá því að vera lauflétt ganga, sérstaklega með tilliti til hæðarinnar sem gerir flestum erfiðara fyrir. Yfir helmingur leiðarinnar er upp í móti og nauðsynlegt er að þátttakendur verði búin að undirbúa sig vel.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Perúævintýri með Önnu Pálu – júní 2027
Frá 999.000 kr.
/ Fullorðin