Heiða Björk, Ást og Friður – Ayurveda studio og MUNDO bjóða til heilsuveislu þar sem áherslan er lögð á panchakarma meðferðina indversku.
Í þessari ferð gefst tækifæri til að sameina áhrifaríka heilsumeðferð í anda ayurveda og ævintýraferð til Indlands um leið og fræðst er um hina fornu lækningameðferð PANCHAKARMA. Námskeiðið og ferðina leiðir Heiða Björk næringarþerapisti, ayurvedasérfræðingur, kennari og leiðsögukona. Heilsusetrið sem dvalið verður á fékk nýlega viðurkenningu sem besta Ayurveda heilsusetrið á Suður Indlandi.
Flogið verður út 25./26. febrúar (fer eftir flugtengingum hvor dagurinn verður) og komið heim 28. mars. Dvalið verður í 24 daga (1.-24. mars) á hinu margverðlaunaða ayurveda heilsusetri AYURVEDAGRAM sem er í Karnataka héraði á Suður-Indlandi.
-
Heiða Björk Sturludóttir næringarþerapisti, ayurvedasérfræðingur, kennari og leiðsögukona.
-
25./26. febrúar - 28. mars 2027
-
frá 949.000 kr (fer eftir tegund herbergis) plús flug (Mundo sér um að bóka þegar hópurinn er fullbókaður, áætlað verð 250-270 þús)
-
134.000 kr fyrir standard, 164.000 kr fyrir heritage
-
25% af verði ferðar
-
Flug greiðist þegar flug er bókað. Lokagreiðsla ferðar fyrir 10. janúar 2027 - greiðsluseðill kemur í netbanka
-
14
Fyrir hverja er panchakarma?
Panchakarma er einstaklingsmiðuð heilsumeðferð ayurveda lífsvísindanna. Ayurveda læknir fer yfir heilsufar og væntingar og lagar meðferðina að því. Ekki er nauðsynlegt að þekkja ayurvedafræðin eða jógafræðin til að njóta panchakarma meðferðar. Með aðferð panchakarma er hægt að koma jafnvægi á lífskraftana þrjá (dósjurnar þrjár): vata, pitta og kapha – sem stýra virkni líkama okkar. Þegar þær eru komnar úr jafnvægi byrja veikindi að láta á sér kræla. Meðferðin er því gagnleg fyrir þá sem glíma við heilsufarsvanda, jafnt líkamlegan sem andlegan en ekki síður fyrir þá sem vilja styrkja líkamann og hægja á öldrun. Húðin ljómar og líkaminn er allur slakur og fínn eftir panchakarma meðferð þar sem dekrað er við hvern og einn með hollu og góðu fæði, jurtastyrktum olíum, olíunuddi eða þurrnuddi með jurtum, jóga, hugleiðslu, öndunaræfingum og einfaldlega með því að slaka á í fallegu umhverfi og koma reglu á lífsklukkuna. Sumir fara reglulega í panchakarma til að stilla dósjurnar af og leggja inn í heilsubankann en aðrir fara sjaldnar og eingöngu til að vinna með ákveðna sjúkdóma eða kvilla. Því lengur sem dvalið er, því meiri árangur næst.
Í upphafi fyllir fólk út spurningalista varðandi heilsufar sitt og sendir til Ayurvedagram setursins. Þegar út er komið tekur við viðtal og skoðun hjá ayurveda lækni sem útbýr prógram í samræmi við svörin í spurningalistanum og skoðunina á staðnum. Ayurveda læknir athugar daglega stöðuna hjá hverjum og einum og gerir breytingar í samræmi við þá framvindu sem á sér stað í meðferðinni.
