Spænskunám í Cádiz fyrir 16-19 ára – sumarið 2027

15 Dagar

Frábært tveggja vikna sumarnámskeið fyrir ungt fólk á menntaskólaaldri í samstarfi við CLIC málaskólann í Cádiz. Skólinn hefur haldið sumarnámskeið fyrir ungt fólk um árabil með frábærum árangri. Námskeiðið er afar vinsælt, spænskukennslan er framúrskarandi og alla daga er fjölbreytt dagskrá með afar góðu utanumhaldi. Þátttakendum er skipt í hópa eftir aldri og spænskukunnáttu ef einhver er.
Dvalið er hjá spænskum fjölskyldum til að kynnast enn betur spænskri menningu og tungumálinu. Unglingurinn er hluti af fjölskyldunni og þarf að fara eftir þeim reglum sem fjölskyldan og skólinn setur.

** Snemmskráningarafsláttur 30.000 kr (dregst frá lokagreiðslu) ef staðfest er fyrir 5. febrúar 2027 **

  • Tekið á móti hópnum á flugvellinum í Faro og vel haldið utan um hann allan tímann.
  • 24. júlí - 7. ágúst 2027
  • 495.000 kr
  • 25% af verði ferðar
  • greiðist fyrir 5. júní 2027 - greiðsluseðill kemur í netbanka
  • 10-14
  • 16
  • 19

Markmið ferðarinnar:
Spænskunám 20 stundir á viku í tungumálaskólanum CLIC sem hefur verið rekinn í fjölda ára um allan Spán. Kennslu er skipt í tvennt, málfræðireglur og talað mál. Nemendum er skipt í hópa eftir spænskukunnáttu.
Menningarupplifun með fjölbreyttri dagskrá á hverjum degi.
Kynnast spænskum fjölskyldum og ungmennum frá öllum heimshornum.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Spænskunám í Cádiz fyrir 16-19 ára – sumarið 2027
Frá 495.000 kr.
/ Fullorðin