Nepal – Gönguferðir

12 Dagar

Himalaja kallar.

Gönguferðir í Nepal fyrir hópa 1–20 manna. Þú velur fjallið – við sjáum um allt hitt.

  • Almennt 12-15 dagar - en skoðum allt
  • Allt að 5.555 metra hæð
  • Staðar leiðsögumenn og burðarfólk.
  • Þáttakendur þurfa að vera í góðu formi og til í líkamleg og andleg átök

Kannski hefur þig lengi dreymt um að standa við rætur Everest. Eða þig langar að ganga yfir fjallaskarð í 5.000 metra hæð, eftir ævafornum verslunarleiðum. Kannski viltu bara horfa á sólina rísa yfir Annapurna með heitan tebolla í höndunum. Í Nepal rætast allir þessir draumar.

Gönguleiðirnar fimm hér að neðan eru ólíkar en allar ógleymanlegar. Sumar henta vel sem fyrsta Himalaja-ferð, aðrar eru fyrir þá sem vilja reyna á sig. Reyndir nepalskir leiðsögumenn og burðarfólk fylgja hópnum alla leið. Á kvöldin bíða hlý tehús með heitum mat og góðum félagsskap.

Þú getur einbeitt þér að ævintýrinu sjálfu. Við sjáum um skipulagið og samskiptin við Nepal, og þú getur alltaf leitað til okkar á íslensku.

Svona virkar það

Allar ferðir eru skipulagðar eftir fyrirspurn, fyrir hópa frá 2 upp í 20 manns. Þú ræður dagsetningunni og hópnum.

  1. Þú sendir fyrirspurn. Segir okkur hvaða leið heillar, hvenær þú vilt fara og hversu mörg í hópnum.
  2. Við sendum tilboð. Innan nokkurra daga færðu verð, dagskrá dag fyrir dag og allt sem er innifalið.
  3. Við skipuleggjum. Þegar þú staðfestir bókum við leiðsögn, gistingu, innanlandsflug og leyfi í Nepal. Við aðstoðum einnig við millilandaflug ef þess er óskað.
  4. Þú undirbýrð þig. Þú færð búnaðarlista og ráð um æfingar og aðlögun að hæð.
  5. Þú gengur. Leiðsögumaður tekur á móti þér á flugvellinum í Katmandú. Ef eitthvað kemur upp á erum við alltaf til staðar.

Ferðirnar

Fimm leiðir, frá fyrstu Himalaja-göngunni upp í stóru skarðin.

Undir tindum Annapurna – Annapurna Base Camp gönguferð

12 dagar · hæst 4.130 m · ●●○○

Fullkomin fyrsta Himalaja-ferð. Þú gengur upp í gegnum ródódendronskóga og terrassaða akra í þorpum Gúrka. Skömmu síðar stendurðu í miðjum risastórum fjallahring, umkringd(ur) tindum yfir 7.000 m. Á leiðinni er snemmbúin sólarupprás á útsjónarhæð sem fáir gleyma. Ferðin hefst og endar í vatnabænum Pokhara.

Stóri Annapurna-hringurinn – Annapurna Circuit gönguferð

13 dagar · hæst 5.416 m · ●●●○

Ein þekktasta gönguleið heims. Þú ferð úr grónum dölum upp í þurrt, tíbeskt landslag. Svo kemur hápunkturinn: Thorong La, eitt hæsta gönguskarð í heimi. Hinum megin bíður helgistðurinn Muktinath og svo slakandi dagar í Pokhara.

Á slóðum Everest – Everest Base Camp gönguferð

14 dagar · hæst 5.555 m · ●●●○

Ferðin sem allir tala um. Flogið er inn til Lukla, einhvers spennandi flugvallar heims. Þú gengur um sherpaþorp og búddískt klaustur alla leið að grunnbúðum Everest. Hápunkturinn er sólarupprás á Kala Patthar, þegar hæsta fjall heims verður gullið. Tveir aðlögunardagar gera ferðina öruggari.

Bláu vötnin við Everest – Gokyo & Renjo La gönguferð

14 dagar · hæst 5.360 m · ●●●●

Everest-svæðið án mannfjöldans. Þú gengur að grænbláum jökulvötnum Gokyo og upp á Gokyo Ri. Þaðan sjást fjórir af sex hæstu tindum heims í einu. Svo er farið yfir Renjo La-skarðið og niður um rólega sherpaþorpið Thame. Fyrir þá sem hafa gengið áður og vilja meira.

Hringurinn um Manaslu – Manaslu Circuit gönguferð

15 dagar · hæst 5.160 m · ●●●●

Nepal eins og það var. Manaslu er áttunda hæsta fjall heims og leiðin liggur um verndarsvæði þar sem ferðamenn þurfa sérstakt leyfi. Það þýðir færri göngumenn, tíbesk þorp og ekta menningu. Hápunkturinn er Larkya La-skarðið með útsnið yfir jökla og tinda. Við sjáum um öll leyfin.

Hvenær og hversu erfitt?

Besti tíminn: vor (mars–maí) og haust (september–nóvember). Á vorin blómstra ródódendronskógarnir. Á haustin er loftið tærast og útsniðið best. Við mælum ekki með ferðum á monsúntímanum (júlí–ágúst). Á Annapurna-svæðinu er líka hægt að ganga í febrúar og desember.

Erfiðleiki: þú þarft ekki að vera fjallgöngugarpur, en góð grunnþol er nauðsynleg. Dagleg ganga er yfirleitt 4–8 klukkustundir. Sumir dagar á stóru skörðunum eru lengri. Hæðin er helsta áskorunin. Þess vegna gerum við ráð fyrir aðlögunardögum og leiðsögumenn fylgjast með líðan hópsins.

  • ●●○○ – Fyrir þau sem ganga reglulega á fjöll, t.d. Esjuna
  • ●●●○ – Fyrir þau sem hafa gengið nokkurra daga göngur, t.d. Laugaveginn
  • ●●●● – Fyrir vant göngufólk sem ræður við langa daga í mikilli hæð

Tilbúin(n) í ævintýri lífsins?

Segðu okkur hvað heillar og við setjum saman ferð fyrir þinn hóp. Fyrirspurn er óbindandi. Fyrirspurnarformið er neðar á síðunni.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Nepal – Gönguferðir