Einkaferð: Áramótaævintýri í Marokkó 2026-2027!

9 Dagar

Upplifðu litríka Marrakech, forna menningu í Fes, nútímaarkitektúr í Casablanca, gullnar sandöldur í Merzouga og töfrandi Ouarzazate, kvikmyndaborgina við eyðimörkina. Þessi ferð sameinar borgarlíf, sögu, menningu og náttúru – fullkomin leið til að hefja nýtt ár í ævintýrum!

Frábær einkaferð fyrir fjölskyldu og vinahópa en verð ferðarinnar fer eftir hópastærð.

  • Fyrir hópa sem telja fleiri en 5 farþega fylgir einkabílstjóri og innlendur enskumælandi leiðsögumaður allan tímann. Fyrir minni hópa (2-4 farþegar) er einkabílstjóri allan tímann og innlendur enskumælandi leiðsögumaður í heimsóknum í Marrakech (1 dagur), Casablanca (1 dagur), Rabat, Fes (1 dagur)
  • 28. desember 2026 - 5. janúar 2027
  • Frá 299.900 kr
  • 97.000 kr
  • 25% af heildarverði ferðar
  • greiðist fyrir 15. nóvember – greiðsluseðill kemur í netbanka
  • 2-4, 5-7, 8-10

Upplifðu töfra Marokkó í einstakri nýársferð sem sameinar stórbrotna náttúru, fornar borgir og einstaka menningu – ógleymanleg byrjun á nýju ári!
Marrakech – litríkar götur, souk-markaðir og menningarperlur.
Casablanca – stórbrotna Hassan II moskan.
Rabat, Meknes og Volubilis – saga, list og fornminjar.
Fes – miðaldaborg með lifandi hefðir.
Merzouga – Sahara-eyðimörkin, úlfaldar og stjörnunætur.
Ouarzazate og Ait Benhaddou – kvikmyndaborg og kasbahs.

Verð:
Ef hópur telur 2-4 farþega = 399.900 kr./farþega m.v. gistingu í tvíbýli
Ef hópur telur 5-7 farþega = 359.900 kr./farþega m.v. gistingu í tvíbýli
Ef hópur telur 8-10 farþega = 299.900 kr./farþega m.v. gistingu í tvíbýli
Aukagjald f. einbýli = 97.000 kr.
Bæta við fullu fæði = 62.900 kr./farþega

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Einkaferð: Áramótaævintýri í Marokkó 2026-2027!
Frá 399.900 kr.
/ Fullorðin