Færeyjar: ganga og menning – maí 2026

6 Dagar

Langar þig að heimsækja frændur okkar Færeyinga og njóta útivistar og menningar? Í þessari sex daga ferð upplifum við náttúrufegurð Færeyja og fáum góða innsýn menningu og sögu nágrannaþjóðar okkar. Gengið verður um áhugaverðar slóðir á Vogey, Straumey, Austurey og Karlsey. Við göngum gamlar þjóðleiðir, svo kallaðar byggðagötur, og á hæsta tind Færeyja, Slættaratind.
Fararstjórarnir eru hvers manns hugljúfi, hrókar alls fagnaðar, mikið útivistarfólk og þekkja Færeyjar vel. Svo er vert að minnast á að Færeyingar eru höfðingjar heim að sækja og mjög svo skemmtilegir.

**Snemmskráningarafsláttur 15.000 kr ef staðfest er fyrir 1. nóvemer 2025**

  • Þóra Björk Hjartardóttir og Örvar Aðalsteinsson
  • 22.-27. maí 2026
  • 359.000 kr
  • 65.000 kr
  • 25% af verði ferðar
  • Eftirstöðvar greiðist fyrir 10. apríl 2026 - greiðsluseðill sendur í netbanka
  • 10 - 14

Yfirlit

Göngurnar eru allar hóflega langar en þátttakendur þurfa að hafa reynslu af göngum í brattlendi og  á misgrófu undirlendi. Við gefum okkar góðan tíma í að njóta landslags og umhverfis og rölta um litlu gömlu þorpin með sínum fallegu tjörguðu timburhúsum með torfþaki. Tími gefst til að skoða sig um í höfuðstaðnum Þórshöfn og njóta matar og drykkjar á hinum fjölmörgu góðu veitingastöðum sem þar eru.
Gist er allan tímann í Þórshöfn á nýlegu mjög góðu hóteli, Hótel Brandan, sem  er í um 15 mínútna göngufæri frá miðbænum. Rúta ekur okkur alla daga á upphafsstað göngu og sækir okkur á áfangastað.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Færeyjar: ganga og menning – maí 2026
Frá 359.000 kr.
/ Fullorðin