Gönguhelgar á Siglufirði – maí 2026

3 Dagar

Viltu taka forskot á göngusumarið, gista í sjarmerandi herbergi og láta dekra við þig í mat á fallegu hóteli? Í samstarfi við Hótel Siglunes bjóðum við upp á gönguhelgar í maí, frá föstudegi til sunnudags. Gist er í fallegum herbergjum og innifalið er máltíð á marokkóska veitingastað hótelsins.

Á föstudagskvöldi er boðið upp á stutta göngu um Siglufjarðarbæ og á laugardegi er dagsganga sem miðast að hverju sinni við hópinn sem er mættur, ástand gönguleiða og veður, en það sem er í pottinum er t.d.
– um Héðinsfjörð út að sjó vestanmegin og til baka austanmegin (vaðskór nauðsynlegir)
– umhverfis Ólafsfjarðarvatn
– Hvanneyrarhyrna: gengið upp í Hvanneyrarskál og þaðan upp á Hvanneyrarhyrnu
– póstmannaleiðin yfir Siglufjarðarskarð
– um Hestsskarð yfir í Héðinsfjörð

Dagsetningar:
15.-17. maí (auðvelt að bæta einni nótt þar framan við þar sem 14. maí er uppstingingardagur)
22.-24. maí

Verð fyrir tvo: 67.300 kr m.v. gistingu í tveggja manna standard herbergi (sendið póst á info@hotelsiglunes.is til að fá verð í einstaklingsherbergi eða aðra tegund herbergis)
Innifalið:
– gisting í tvær nætur með morgunmat í tveggja manna standard herbergi
– þriggja rétta kvöldmáltíð (án drykkja) annað hvort föstudags- eða laugardagskvöld á marokkóska veitingastaðnum á Hótel Siglunesi (takið fram við bókun hvort kvöldið þið viljið)
– gönguferðir með leiðsögn Margrétar Jónsdóttur Njarðvík

Athugið að allar fyrirspurnir og bókanir sendist á info@hotelsiglunes.is

  • 67.300 kr

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Gönguhelgar á Siglufirði – maí 2026