Jakobsvegur – portúgalska leiðin með Valdimar og Berglindi úr meðvirknipodcastinu – haust 2026 – Í VINNSLU

9 Dagar

Gengnir verða síðustu 150 km á portúgölsku leið Jakobsvegarins til Santiago en um ræðir 6 göngudaga og svo hvíldardag í Santiago að því loknu. Samtals 9 daga ferð með ferðadögum til og frá Íslandi. Yndisleg leið til að rækta líkama og sál í góðum félagsskap og fallegu umhverfi undir handleiðslu Valdimars og Berglindar sem stýra meðvirknipodcastinu.

Hjónin Valdimar Þór Svavarsson og Berglind Magnúsdóttir félagsráðgjafi hafa í meira en áratug verið að sinna ráðgjöf og meðferðarstarfi á mannlega sviðinu. Valdimar hefur komið víða fram, bæði í blöðum, útvarpi og sjónvarpi ásamt því að halda námskeið í fjölda fyrirtækja og stofnana, þar sem hann fjallar um ýmsar hliðar mannlegar tilveru. Berglind sinnir meðferðarvinnu á eigin stofu og notar ýmsar aðferðir, bæði hefðbundna samtalsmeðferð en ekki síður áhugaverðar nálganir, þar á meðal sérstaka öndunartækni sem hafa vakið mikla athygli þeirra sem til hennar hafa leitað. Saman halda þau úti Meðvirknipodcastinu – nýtt upphaf, sem er vinsælasta fræðsluhljóðvarp landsins. 

Á meðan á göngunni stendur munu ferðafélagar fá upplífgangi fróðleik og innblástur frá þeim hjónum sem mun efla og hvetja andann. Berglind mun bjóða upp á ógleymanlega morgunstundir þar sem blandað er saman öndun og hugleiðslu sem hjálpar okkur að vera vel undir gönguna búin. Valdimar mun svo gefa okkur innsýn í þekkingu sem safnast hefur yfir árin, meðal annars í gegnum persónuleg verkefni í lífinu og hvað sú reynsla hefur kennt honum um tilgang lífsins og lífshamingjuna. 

Það er óhætt að segja að gangan verði nærandi og ógleymanlegur tími með þessi hjón með í för. 

SENDU OKKUR LÍNU Í GEGNUM FORMIÐ HÉR FYRIR NEÐAN EÐA Á MUNDO@MUNDO.IS EF ÞÚ VILT VERA Á PÓSTLISTA FYRIR ÞESSA FERÐ OG ÞÚ FÆRÐ PÓST UM LEIÐ OG HÚN FER Í SÖLU.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Jakobsvegur – portúgalska leiðin með Valdimar og Berglindi úr meðvirknipodcastinu – haust 2026 – Í VINNSLU