Tilveran, Barre- og Yoga stúdíó, í samstarfi við Mundo.
Leyfðu þér að stíga út úr amstrinu og inn í viku sem byggir undir jafnvægi, styrk og djúpa endurhleðslu í hópi góðra kvenna. Við dveljum á fallegum stað í hjarta hinnar heillandi Arcos de la Frontera, þar sem við munum njóta samverunnar og fegurðarinnar sem er allt umlykjandi í Arcos og þar í kring.
** Síðasti dagur til að bóka/staðfesta í þessa ferð er 10. júní 2026 **
-
Aðalheiður Jensen, eigandi Tilveran Heilsusetur á Garðatorgi, kennari með diplómu í jákvæðri sálfræði frá Hí. Hún er með kennararéttindi í Rope yoga, Yoga barna og unglinga, Barre kennslu sem og diplómu í lífsráðgjöf. Hún brennur fyrir því að hjálpa fólki að bæta líkamlega og andlega heilsu með öllum þeim verkfærum sem hún hefur sankað að sér í gegnum lífið.
-
16.-23. september 2026
-
339.000 kr
-
ekki í boði
-
84.750 kr
-
greiðist fyrir 1. ágúst 2026
-
10-15
Beint flug með Icelandair til Malaga og þaðan farið með rútu til Arcos sem tekur tæplega tvo tíma. Við dveljum á fallegu litlu hóteli sem stendur aðeins utan við bæinn. Herbergin eru stór og allt til alls til að láta sér líða sem best. Morgunmatur á staðnum alla morgna, stór sundlaug, verönd og salur þar sem hægt er að njóta hreyfingar og samveru.
