Mundo hefur sérhannað ferðir til Spánar fyrir kennarahópa og annað skólastarfsfólk hvort sem er í byrjun sumarleyfis eða í haust- og vetrarfríum. Þessi ferð er til Granada, Sevilla og Malaga.
Ferðirnar er styrkhæfar hjá KÍ enda vönduð dagskrá með skólaheimsóknum, fyrirlestrum og örnámskeiðum. Lífleg dagskrá hvern dag með góðri samsetningu af fræðslu og skemmtun.
-
Já
-
7.-11. júní 2025, einnig haust- og vetrarfrí
-
fyrir verðtilboð sendið póst á mundo@mundo.is
Dæmi um dagskrá:
Flogið frá Keflavík til Malaga. Rúta til Granada, beint á hótel.
Skólaheimsókn / hvernig notum við nærumhverfið okkar til kennslu? Hádegismatur og frítími. Hellarnir í Sacromonte skoðaðir, kvöldverður og flamengó sýning.
Ekið í rútu til Sevilla. Hádegisverður. Kynning og stuttur fyrirlestur - María Theresa Alonso. Gönguferð um miðborg Sevilla með leiðsögn.
Skólaheimsókn. Hádegisverður. Fyrirlestur, María Theresa Alonso: Skólakerfið á Spáni - aðferðir við tungumálakennslu. Hin fræga dómkirkja Sevilla “La Giralda” skoðuð með leiðsögn. Tapaskvöld.
Ekið til Malaga. 14:00-17:00 leiðsögn um Malaga og Picasso safnið. Ekið á flugvöll og flug heim.