Vatnslitanámskeið á Siglufirði 28. – 31. maí 2026

4 Dagar

Ferðaskrifstofan Mundo býður upp á vatnslitanámskeið undir handleiðslu listamannsins Sigtryggs Baldvinssonar á Siglufirði á vordögum 2026. Námskeiðið er ætlað byrjendum sem eru að taka sín fyrstu skref með vatnslitapensilinn sem og lengra komnum sem vilja fá tilsögn við að fínpússa list sína. Viðfangsefni námskeiðsins verður náttúra Tröllaskagans og það hvernig við nálgumst landið í gegnum athöfnina að mála. Vinnan á námskeiðinu skiptist í vettvangsferðir og úrvinnslu. Hvernig getur vatnsliturinn hjálpað okkur við að ná dýpri tengingu við náttúruna og aukið skilning okkar á henni? Ef veður hamlar okkur verða vettfangs- og skissuferðir stuttar og snarpar en ef veður verður blítt verður dvalið lengur og víðar farið.

  • Kennari á námskeiði er Sigtryggur Baldvinsson
  • 28. - 31. maí 2026 (fim - sun)
  • Frá 148.900 kr.
  • 25% af verði ferðar
  • greiðist 4 vikum fyrir upphaf námskeiðs - greiðsluseðill kemur í netbanka
  • 10 - 15

Gist verður á hinu margrómaða “boutique” hóteli sem skreytt er málverkum eftir listakonuna Huldu Vilhjálmsdóttur, Hótel Siglunesi, svo nægur verður innblásturinn til listsköpunar þessa helgi. Það þýðir einnig að þú verður í fæði hjá kokkinum landsfræga Jaouad Hbib en hann er maðurinn á bak við marokkóska veitingastaðinn á hótelinu. Uppbókað var hjá honum svo til hvert einasta kvöld síðasta sumar og galdrar Jaouad fram kryddaða og ilmandi rétti úr ferskasta hráefni sem völ er á hverju sinni. Hótelið býður upp á nærandi og skapandi umhverfi auk þess sem náttúrufegurð Siglufjarðar spilar sína rullu í inntaki námskeiðsins og ekki skemmir fyrir að hægt er að slaka á í heita potti hótelsins á kvöldin eftir annasaman dag. Hljómar það ekki vel?

Um námskeiðsstjóra: Myndlistamaðurinn Sigtryggur Baldvinsson er fæddur árið 1966 og hefur haldið á fjórða tug einkasýninga. Viðfangsefni hans er fyrst og fremst náttúran og síðustu ár hefur samspil gróðurs og vatns í Héðinsfirði verið meginstef í list Sigtryggs. Hann hefur stjórnað fjölda námskeiða víða um land auk þess sem hann hefur kennt við Myndlistaskóla Reykjavíkur, Myndlistaskólann á Akureyri , Listaháskóla Íslands og Myndlistaskóla Kópavogs, nú og haldið vatnslitanámskeið á Siglufirði síðustu sumur við mikinn fögnuð þátttakenda. Verk Sigtryggs má finna í öllum helstu söfnum landsins.

Námsaðstaða: Kennsla fer fram í hinni gamalkunnu og fallegu Ljósastöð á Siglufirði, en um ræðir samfélags- og menningarsetur þar sem listamenn hafa m.a. fengið aðstöðu til listsköpunar sinnar á síðustu árum. Ljóstastöðin er um 700 m frá Hótel Siglunesi og fara þátttakendur á eigin bílum eða tveimur jafnfljótum á staðinn.

Vettvangsferðir: Staðsetning vettvangsferða er ákveðin eftir því hvar best viðrar hverju sinni og fara þátttakendur á eigin bílum ef aka þarf á staðinn.

Útbúnaðarlisti verður sendur á þátttakendur þegar nær dregur.

Athugið að sum stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið.

Verð pr. mann:
 164.900 kr. á mann m.v. gistingu í tvíbýli með sérbaði
 199.900 kr. á mann m.v. gistingu í einbýli með sérbaði
 177.900 kr. á mann m.v. gistingu í einbýli með sameiginlegu baði
 148.900 kr. á mann m.v. gistingu í fjórbýli með sérbaði (4 einstaklingsrúm)

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Vatnslitanámskeið á Siglufirði 28. – 31. maí 2026
Frá 164.900 kr.
/ Fullorðin