Ganga og hjól á Kanarí – október 2026

12 Dagar

Gran Canaria á sína eigin pílagrímaleið með útsýni yfir fjöllin og sjóinn, 66 km krefjandi leið um fallega náttúru og fremur fáfarnar slóðir. Í þessari ferð ætlum við að ganga hana á þremur dögum, um grænar hásléttur, fjallahlíðar og lítil þorp. Við munum líka bjóða upp á hjólaferðir einhverja daga fyrir þá sem vilja hreyfa sig meira, jógaæfingar og mögulega feiri göngur, en aðra daga ferðarinnar er upplagt að njóta góða veðursins og slaka á við ströndina eða sundlaugina.

  • Þórður Marelsson, fjallavinur. Hann er jógakennari, nuddari og fararstjóri með óbilandi áhuga á hjólreiðum, útivist og almennt góðum og heilsusamlegum lífsstíl.
  • 23. október - 3. nóvember 2026
  • 419.000 kr
  • 99.000 kr
  • 25% af verði ferðar
  • greiðist fyrir 10. september 2026
  • 14-18

Dagur 1 :
23. október: Flogið suður á bóginn

Flogið í beinu flugi frá Keflavík til Gran Canaria. Brottför frá KEF kl 10:00, lent í Las Palmas kl 16:20 að staðartíma. Rúta á hótelið og tékkað inn.

Dagur 2 og 3 :
Frjáls tími

Upplagt að njóta góða veðursins, fara í léttar göngur með ströndinni eða bara slaka á með bók á sundlaugarbakkanum.

Dagur 4 :
Pílagrímaganga - fyrsti dagur (Maspalomas - Tunte)

Við hefjum gönguna við vitann í Maspalomas með pílagrímapassa í bakpokanum, hækkum okkur upp í fjöllin, göngum um fjallahlíðar, stórfenglegt gil, dal hinna þúsund pálmatrjáa, lítil þorp og endum í þorpinu Tunte. Þetta er löng og nokkuð krefjandi hækkun frá sjávarmáli upp í 900 m hæð en útsýnið yfir suðurhluta eyjarinnar verður sífellt mikilfenglegra eftir því sem ofar dregur. Munum að fá stimpil í pílagrímapassann á leiðinni. Rúta sækir hópinn í Tunte og ekur til Maspalomas.
Vegalengd 28 km, uppsöfnuð hækkun 1200 m, lækkun 340 m. Göngutími: 8-9 klst.

Dagur 5 :
Pílagrímaganga - dagur tvö (Tunte - Cruz de Tejeda)

Rúta ekur hópnum til Tunte. Við höldum áfram göngu yfir miðhálendið, um furuskóga og yfir hálsana í kring um hæstu fjöll eyjarinnar, með stórkostlegt útsýni yfir að Roque Nublo, sem er einn frægasti klettadrangur Kanaríeyjanna. Endum daginn í stórfenglegu útsýni í Cruz de Tejeda, þar sem margar gönguleiðir mætast. Rúta sækir hópinn þangað og ekur til Maspalomas.
Vegalengd: 17 km, uppsöfnuð hækkun 1050 m, lækkun 460. Göngutími ca 6 klst.

Dagur 6 :
Pílagrímaganga - síðasti dagur (Cruz de Tejeda - Gáldar)

Rúta ekur hópnum til Cruz de Tejeda. Þaðan liggur leiðin niður í átt að norðurhluta eyjarinnar, þar sem loftslagið er rakara og gróðurríkara. Landslagið breytist smám saman úr fjalllendi í græna dali. Á leiðinni opnast fallegt útsýni yfir norðurströnd eyjarinnar. Gangan endar í Gáldar, einni elstu byggð eyjarinnar, sem er þekkt fyrir sögulegan miðbæ og Santiago-kirkjuna þar sem við fáum síðasta stimpilinn í pílagrímapassann. Rúta sækir hópinn og ekur til Maspalomas.
Vegalengd 21 km, uppsöfnuð hækkun 150 m, lækkun 1800 m. Göngutími: 8-9 klst.

Dagur 7 - 11 :
Maspalomas

Engin formleg dagskrá og þess vegna hægt að slaka bara á við sundlaugina eða á ströndinni, en það er líka margt skemmtilegt hægt að gera, t.d. ganga um sandöldurnar, ganga með ströndinni, fara í dagsferð til höfuðborgarinnar Las Palmas eða hafnarþorpsins Puerto de Mogán sem stundum er kallað "litla Feneyjar". Það er líka tilvalið að skella sér í einhverskonar sjósport; jetski, stand-up paddle eða brinbretti svo eitthvað sé nefnt. Einhverja daga mun Þórður bjóða upp á jógaæfingar á sundlaugarbakkanum eða á ströndinni, hjólaferðir fyrir þá sem vilja og aðstoðar við leigu á hjólum við hæfi. Það mun engum leiðast í þessari ferð!

Dagur 12 :
3. nóvember: Heimferð með hjartað fullt af gleði og góðum minningum

Tékkað út af hótelinu. Rúta sækir hópinn og ekur á flugvöllinn í Las Palmas. Flugtak kl 16:30, áætluð lending í KEF kl 22:00 að staðartíma.

Þú getur sent fyrirspurn þína í gegnum formið hér að neðan.

Ganga og hjól á Kanarí – október 2026
Frá 419.000 kr.
/ Fullorðin