Hefur þig lengi dreymt um að ganga Jakobsveginn? Getur verið að nú sé komið að því? Langar þig að njóta pílagrímagöngunnar í rólegheitum og hafa tíma til að skoða menningu, njóta náttúrunnar sem fyrir augu ber á leiðinni og læra spænsku til að geta bjargað þér?
Fararstjóri: Guðrún H Tulinius
Ferðatímabil: 22. til 29. september 2024.
Verð: 275.000.-
Aukagjald fyrir einbýli: 60.000.-
Staðfestingargjald: 52.000.
Fjöldi farþega: lágmark 12 – hámark 20.
Þessi gönguferð er fyrir þá sem vilja njóta lífsins á meðan síðustu 110 km Jakobsvegarins til Santiago er genginn. Hámarksvegalengdir eru 16 – 22 km á dag, en sé komin þreyta í tærnar er alltaf hægt að hoppa upp í leigubíl til að komast á næsta gististað. Leiðin liggur um Galisíu, eitt fallegasta hérað Spánar, frá bænum Sarria til Santiago de Compostela. Í Galisíu í september er sumarið ennþá í fullum skrúða og hitinn orðin bærilegri fyrir göngufólk. Farið er á milli lítilla þorpa og inn í nokkra bæi. Gengið er hægar en í venjulegum pílagrímagöngum, lögð áhersla að njóta og ganga á eigin hraða.
Fararstjóri er Guðrún H Tulinius er fyrrum spænskukennari og fyrir þau sem vilja veitir hún spænskukennslu eftir góðan göngudag.
Drög að dagskrá göngudaganna:
Eftir morgunverð um kl. 8:30 kynnum við okkur göngu dagsins og tökum léttar upphitunaræfingar. Ætlunin er að ganga 4-6 tíma á dag. Við tökum okkur gott matarhlé í kringum hádegið og göngum síðan til áfangstaðar. Þegar á gististað er komið, hvílir fólk sig fyrir kvöldverð, sem venjulega byrjar ekki fyrr en kl. 20 á Spáni.
Fyrir þau sem vilja verður boðið upp á spænskukennslu í lok göngudags. Stuðst verður við kennsluhefti í spænsku. Gistingin er hluti af upplifuninni þar sem hægt er. Það er alltaf lín á rúmum, handklæði og sturta og leitast er við að hafa gistinguna eins fjölbreytta og unnt er (klaustur, bændagisting og í það minnsta ein nótt verður á reglulega fínu hóteli).
22. september
Flogið kl 14:50 frá Íslandi til Portó, Eftir kvöldverð í Portó er ekið á upphafsstað ferðarinnar í Sarria.
23. september
Gengið frá Sarria til Portomarín 21,5 km – hækkun 430m · lækkun 460m
24. september
Gengið frá Portomarín til Ligonde 16 km – hækkun 368 · lækkun 130m
25. september
Gengið frá Ligonde til Melide 21 km – hækkun 250m · lækkun 421 m
26. september
Gengið frá Melide til Arzúa 13,5 km – hækkun 238m · lækkun 260 m
27. september
Gengið frá Arzúa til O Pedrouzo 19 km – hækkun 227 m · lækkun 346 m
28. september
Gengið frá O Pedrouzo til Santiago 20 km – hækkun 235 m · lækkun 136 m
29. september
Síðdegis er ekið á flugvöllinn í Portó og flogið með Play kl 21:00