Description
Hefurðu áhuga á að læra að sitja hinn víðfræga Andalúsíu- eða lúsítaníuhest? Viltu slá tvær flugur í einu höggi og kynnast máli og menningu Portúgals í leiðinni? Ef svarið er já þá er eftirfarandi í boði:
Dvalið er í viku í reiðskóla Jorge D’Almeida sem er í 40 mínútna akstursfjarlægð frá Lissabon. Venjulegur dagur væri eitthvað á þessa leið:
kl. 9 Morgunmatur
kl. 10-12 Reiðskóli
kl. 13-14 Hádegismatur
kl. 16-18 Portúgölskukennsla
kl. 20 Kvöldmatur
Verð per viku er 199.000 kr. Innifalið í verði er reiðkennsla, portúgölskunám, gisting og fullt fæði.
Nánari upplýsingar: Margrét s. 691 4646 margret@mundo.is