Description
Mundo verður með spænskunámskeið fyrir forvitna ferðalanga haustið 2016. Um ræðir átta skipti – 90 mínútur í senn og kennt verður á fimmtudögum frá kl.18:00 til 19:30. Kennslan fer fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð og verður fyrsta kennslustundin þann 8. september næstkomandi. Um ræðir námskeið fyrir forvitna og fróðleiksþyrsta byrjendur sem vilja læra hratt það sem máli skiptir.
Kostnaður er 25 þúsund krónur og er spænsk miniorðabók innifalin í verði.