Skilmálar Mundo
Samingur
1.1 Samningur er gerður milli MUNDO og viðskiptavinar þegar viðskiptavinur hefur staðfest bókun munnlega eða skriflega, með bréfi, símbréfi, sms eða álíka og Mundo hefur staðfest móttöku pöntunar.
2. Greiðsluskilmálar
2.1 Staðfestingargjald í ferðir er mismunandi og er það óendurkræft.
2.2 Ferðir skal greiða að fullu sex vikum fyrir brottför og tíu vikum ef um ferðir til USA eða Kanada sé að ræða. Sé ferðin ekki greidd að fullu fyrir þann tíma áskilur Mundo sér rétt til að líta svo á að ferðin sé afpöntuð.
2.3 Ef bókað er í ferð skemur en sex vikum fyrir brottför ber að greiða hana að fullu.
2.4 Fyrir stóra hópa getur Mundo farið fram á 35% staðfestingargjald fyrir gistingu. Ef gisting er afpöntuð þegar 8 vikur eða skemur er í komu, þá er gjaldið óendurkræft.
3. Verð
3.1 Allt verð er gefið upp í krónum (ISK). Allt verð sem gefið er upp í öðrum gjaldmiðli endurspeglar gengi krónunnar þegar greiðsla er innt af hendi. Verð getur breyst vegna gengisbreytinga.
3.2 Eftir að samningur hefur verið undirritaður og verð gefið upp í krónum (ISK) þá stendur það, nema til komi óvenjulegar og ófyrirséðar aðstæður líkt og verðbólguskot og/eða hrun. Þarf þá að endurskoða samning.
3.3 Ef greiðsla er innt af hendi í erlendri mynt, þá er hver greiðsla háð gengi Seðlabanka Íslands hverju sinni.
Afbókun (á við um einstaklinga, ekki í hópabókun)
4.1 Allar afpantanir verða að vera skriflegar, með tölvupósti eða öðrum skriflegum skilaboðum. Samkvæmt venjum í íslenskum ferðaiðnaði er Mundo skylt að taka gjald fyrir afbókun eins og lýst er hér á eftir:
Afbókunargjald er sem hér segir en varðar ekki gistingu (athugið að staðfestingargjald er ekki endurgreitt hætti þátttakandi við ferð).
4.1 Ekkert afbókunargjald er fyrir ferðir sem eru afbókaðar meira en 60 dögum fyrir brottför (staðfestingargjald er þó óendurkræft).
4.2 Ef ferð er afbókuð þegar færri en 60 dagar eru í brottför og fleiri en 30 dagar eru í brottför þá áskilur Mundo sér 10% af verði ferðarinnar í afbókunargjald, umfram staðfestingargjalds.
4.3 Ef ferð er afbókuð þegar færri en 30 dagar eru í brottför og fleiri en 14 dagar eru í brottför þá áskilur Mundo sér 25% af verði ferðarinnar, umfram staðfestingargjalds.
4.4 Ef ferð er afbókuð þegar færri en 14 dagar og fleiri en 48 klukkustundir eru í brottför þá áskilur Mundo sér 50% af verði ferðarinnar, umfram staðfestingargjalds.
4.5 Ef ferð er afbókuð þegar færri en 48 stundir eru í brottför er engin endurgreiðsla.
Afbókun (skilmálar fyrir hópabókanir)
5.1 Allar afpantanir verða að vera skriflegar, með tölvupósti eða öðrum skriflegum skilaboðum. Samkvæmt venjum í íslenskum ferðaiðnaði er Mundo skylt að taka gjald fyrir afbókun eins og lýst er hér á eftir:
5.2 Fyrir hópa og einstaklinga í hópabókunum (ef hópur telur 10 – 20 einstaklinga).
Skilmálar fyrir afbókun, sé afbókun gerð:
5.3 – 10 vikum (70 dögum) og meira en 8 vikum (57 dögum) fyrir brottför – allt endurgreitt nema staðfestingargjald.
5.4 – 8 vikum (56 dögum) og meira en 6 vikum (43 dögum) fyrir brottför – 40% afbókunargjald tekið, umfram staðfestingargjalds.
5.5 – 6 vikum (42 dögum) og meira en 4 vikum (29 dögum) fyrir brottför – 50% afbókunargjald tekið, umfram staðfestingargjalds.
5.6 – 4 vikum (28 dögum) og meira en 2 vikum (15 dögum) fyrir brottför – 75% afbókunargjald tekið, umfram staðfestingargjalds.
5.7 – 2 vikum (14 dögum) fyrir brottför – 100% afbókunargjald tekið
5.8 Fyrir hópa og einstaklinga í hópabókunum (ef hópur telur 21 einstakling eða fleiri):
Skilmálar fyrir afbókun, sé afbókun gerð:
5.9 – 13 vikum (91 degi) og meira en 8 vikum (57 dögum) fyrir brottför – allt endurgreitt nema staðfestingargjald
5.10 – 8 vikum (56 dögum) og meira en 2 vikum (15 dögum) fyrir brottför – 50% afbókunargjald tekið, umfram staðfestingargjalds.
5.11 – 2 vikum (14 dögum) fyrir brottför – 100% afbókunargjald tekið, umfram staðfestingargjalds.
5.12 Athugið að fækkun í staðfestum hópi getur leitt til þess að verð hækki/ þurfi að endurreikna fyrir hópinn í heild, og að afbókunargjald sé tekið skv. skilmálum hér að ofan.
5.13 Ferð telst hefjast á fyrsta ferðadegi og er talið út frá honum. Ein vika er 7 dagar. Afbókun þarf að berast skriflega og eru þá dagar taldir frá því hún er send til fyrsta ferðadags til að fá út í hvaða prósentuflokk afbókunin telst.
6. Afbókanir á gistingu
6.1 Ekkert afbókunargjald er vegna gistingar meira en 30 dögum fyrir komu.
6.2 Ef gisting er afpöntuð 30 til 14 dögum fyrir komu tekur Mundo andvirði einnar nætur gistingar í afbókunargjald.
6.3 Ef gisting er afbókuð 14 dögum eða minna fyrir komu, tekur Mundo afbókunargjald sem samsvarar fjölda gistinótta og fjölda pantaðra herbergja.
6.4. ATHUGIÐ! Pakkaferðir (svo sem hóp-, náms- og menntaferðir) eru seldar sem einn pakki og ekki hægt að taka út ákveðna kostnaðar- eða ferðaliði. Allar breytingar sem þátttakandi í hópferðum/menntaferðum Mundo kann að óska eftir á ferðatilhögun, svo sem lengingu ferðar, breyttan heimferðardag og aðstoð við kaup á gistingu umfram þann tíma sem ferðatímabilið segir til um, er einungis hægt að verða við gegn aukagjaldi. Þá skal þess getið að sundurliðanir á kostnaði ferða eru leiðbeinandi þar sem við búum í heimi síbreytilegs flugverðs og flugmiði eins getur kostað meira eða minna en þess sem ferðast með honum.
Frestun
7.1 Ef viðskiptavinur frestar kaupum innan 30 daga frá því ferð átti að hefjast tekur Mundo 10% af heildarupphæð í þjónustugjald.
Ábyrgð
8.1 Í þær ferðir Mundo sem fela í sér þjónustu þriðja aðila er Mundo umboðsaðili viðskiptavinar og axlar ekki ábyrgð á því sem upp kemur.
8.2 Mundo ber ekki ábyrgð á tapi, tjóni eða slysum á fólki í ferðum.
8.3 Mundo ber ekki ábyrgð á veðri og afbókunum þess vegna.
9. EXTRAS
9.1 Öll þjónusta sem ekki er innifalin í seldum pakka greiðist sjö dögum eftir að reikningur hefur verið gefinn út og eru háðir 20% umsýslugjaldi.
10. Skattar
10.1 Skattar eru innifaldir í uppgefnu verði
11. Trúnaður
11.1 Mundo fer með allar upplýsingar viðskiptavinar sem trúnaðarupplýsingar og gefur þær ekki frá sér undir neinum kringumstæðum.
Athugasemdir:
Grein 3.2 var uppfærð þann 24. mars 2020 og gildir um alla samninga sem gerðir eru frá og með þeim degi.
Eiðistorgi
Seltjarnarnes
Ísland
Kt. 630609-2080
Vsk. nr. 109768
Netfang: mundo@mundo.is
Email: margret@mundo.is
S:691-4646/Margrét