Description
Gönguferð fyrir hressa og káta karla um síðustu 200 km á Pílagrímastígnum til Santiago de Compostela. Á þessari leið skiptast á hólar og hæðir, skógar, landbúnaðarhéruð, borgir og bæir – þessi ferð stendur svo sannarlega undir einkunnarorðum Mundo: menntun, skemmtun, menning og þjálfun. Að meðaltali eru gengnir um 20 km á dag.
Gistingin er allar tegundir af herbergjum en þó oftast tveggja manna, a.m.k. einu sinni margir saman í stærri herbergjum til að upplifa ekta pílagrímastemmingu. Það er alltaf lín á rúmum, handklæði og sturta.
Fararstjóri: Séra Halldór Reynisson rektor í Skálholti
Ferðatímabil: 6.-20. júní 2017
Verð: 439.000 m.v. tvo í herbergi.
Innifalið: flug, hótel, morgunmatur alla daga, hádegismatur á göngudögum, trúss (hámark 10 kg), leiðsögn.
Fjöldi farþega: Lágmark 10 – hámark 20.
Nánari upplýsingar: Margrét s. 691 4646 margret@mundo.is eða Birna s. 788 4646 birna@mundo.is