Description
Skiptinám á Spáni með MUNDO og INTOSPAIN
Traustur samstarfsaðili
Eftir mikla umhugsun og leit að vænlegum og traustum samstarfsaðila ákvað Mundo að vinna með Mundo á Spáni og INTO samtökunum. Um ræðir lítil fyrirtæki – sem heldur vel og persónulega utan um ungmennin þannig að ef eitthvað kemur uppá þá er aldrei gripið í tómt og málin leyst í samvinnu allra aðila. Eva Arenales er eigandi Mundo á Spáni og hefur unnið með Mundo frá upphafi. Hún er sú sem heldur utan um sumarbúðir Mundo á Spáni og hefur sjálf oft komið til Íslands. Sökum þess að sífellt fleiri fara með Mundo til Spánar þá tókum við upp samstarfs við INTO samtökin í Madrid. Þeim er stýrt af Alena Válková og fóru fyrstu skiptinemarnir með þeim út í september 2018. INTO varð fyrir valinu af mörgum öðrum sökum faglegra vinnubragða.
Spænska er töluð í yfir tuttugu löndum og eykst mikilvægi hennar með ári hverju. Því er spænskuþekking ungmenna fjársjóður sem endist og er gagnleg til að ferðast til Rómönsku Ameríku, Bandaríkjanna og Afríku. Mundo mælir hins vegar með því að senda ungmennin til Spánar á meðan þau eru enn svona ung. Nægur er menningarmunurinn samt.
Skiptinám getur verið stórkostleg reynsla sem hjálpar ungmennum að vaxa undurhratt á skömmum tíma auk þess að ná góðum tökum á nýju tungumáli. Rannsóknir sýna að þau ungmenni sem fara út sem skiptinemar búa að því alla ævi.
Mundo heldur sérlega vel utan um skiptinemana á Spáni og kemur eigandi Mundo út í febrúar á ári hverju, leigir hús fyrir krakkana eina helgi og tekur púlsinn. Þar að auki er starfsmaður Mundo ávallt á línunni reiðubúinn til að styðja við krakkana í nýjum og krefjandi aðstæðum.
Hægt að dvelja 3, 4 og 10 mánuði
MUNDO er sönn ánægja að bjóða upp á skiptinám á Spáni veturinn 2016-2017. Skiptinámið er fyrir 14-18 ára krakka (miðað við aldurinn þegar lagt er af stað í skiptinámið) og geta þau valið á milli þess að dvelja þar í 3, 4 eða 10 mánuði. Dvalið er hjá vel völdum fjölskyldum víðsvegar um Spán og nærri þeim öllum býr fulltrúi Into eða MUNDO sem hefur valið fjölskyldurnar og fylgist með allan tímann.
Fjölskyldur
Fjölskyldurnar sem dvalið er hjá eiga það sameiginlegt að hafa alþjóðlega reynslu og skilning eða hafa alist upp í tvítyngdu umhverfi og skilja fullvel hvað menningarmismunur og aðlögun eru. Fjölskyldurnar sem við vinnum með eru af öllum stærðum og gerðum, stórar og smáar, barnlausar og barnmargar, þar sem eru giftir og ógiftir einstaklingar. Við vöndum okkur vel við að para saman ungmenni og fjölskyldu.
Dvalið er hjá fjölskyldum í eftirtöldum héruðum: Andalúsíu, Madrid, Segovia, León, Valencia, Galisíu, Kastilíu, Extremadura og Tenerife.
Undirbúningur
Áður en ungmennin halda til fósturfjölskyldnanna fara þau á undirbúningsnámskeið á Spáni en vitaskuld fara þau einnig á undirbúningsnámskeið á Íslandi. Þau kynnast þannig hinum krökkunum sem eru í sama prógrammi.
Þátttökuskilyrði:
1. Vera 14-18 ára þegar skiptinám hefst
2. Vera með lágmark 6,5 í meðaleinkunn í íslenskum skóla
3. Æskilegt er að vera með grunnþekkingu í spænsku en það er ekki nauðsynlegt. Mælt er með að hafa tekið spænsku í eitt ár eða hafa verið í sumarbúðum MUNDO. Ef ekki, þurfa verðandi skiptinemar að taka hraðnámskeið í spænsku fyrir brottför.
4. Hafa nægan þroska og sveigjanleika til að geta tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi.
5. Vera við góða heilsu andlega og líkamlega og laus við alvarlega námsörðugleika. Lesblinda flokkast ekki sem alvarlegir námsörðugleikar.
Dagsetningar
Þriggja mánaða dvöl hefst 8. september og lýkur 11. desember eða þá að hún hefst 28. janúar og lýkur 30. apríl, eftir því hvort farið er að hausti eða á vormisseri.
Fjögurra mánaða dvöl hefst 8. september og lýkur 22. janúar eða þá að hún hefst 28. janúar og lýkur 29. maí, eftir því hvort farið er að hausti eða á vormisseri.
Ársdvöl hefst 8. september og lýkur 29. maí/júní (júní hjá þeim sem eru á næst síðasta ári í spænskum menntaskóla (krakkar fæddir 2000) en maí hjá þeim sem eru á síðasta ári (krakkar fæddir 1999).
Umsóknarfrestur:
31. mars fyrir skiptinám sem hefst að hausti
15. október fyrir skiptinám sem hefst í janúar
Hvað er innifalið í gjaldinu?
1. Flug
2. Vandleg forkönnun á fósturfjölskyldum
3. Undirbúningur fyrir brottför
4. Undirbúningsnámskeið við komu til Spánar
5. Val á fósturfjölskyldu. Ungmenni má velja sér þrjú héruð sem mestan áhuga vekja og reynt er að verða við þeim óskum
6. Fullt fæði og húsnæði
7. Skóladvöl í opinberum spænskum skóla
8. Stuðningur, einstaklingsmiðuð ráðgjöf og eftirfylgni allan tímann.
9. Reglulegar fréttir berast foreldrum frá MUNDO
10. Handbók. Nemendur fá ítarlegan upplýsingabækling með gagnlegum upplýsingum um Spán
11. Áreiðanleg samskipti, fagmennska og stuðingur ef eitthvað kemur uppá
12. Mögulegt er að sumar fjölskyldur hafi tvo skiptinema á sama tíma. Þeir eru aldrei af sama þjóðerni og slíkt er ekki gert nema foreldrar séu samþykkir því.
Hvað er ekki innifalið í skiptináminu?
1. Skoðunarferðir
2. Skólabíll þar sem það á við
3. Tómstundir (tónlistarnám, dans og annað)
4. Skólaferðir
5. Tryggingar. Skylda er að vera með tilskyldar tryggingar og evrópskt sjúkrakort
6. Aukatímar í spænsku
7. Vasapeningar
8. Skólabækur
Verð fyrir 2020-2021 eru eftirfarandi:
3ja mánaða dvöl : 1.290.000
4 mánaða dvöl: 1.390.000
heilt skólaár: 1.890.000
Greiðslur fara fram með eftirfarandi hætti:
Umsóknargjald 150 þúsund er óafturkræft og greiðist við afhendingu umsóknar. 50% af gjaldinu greiðist 31. maí og afgangur þann 15. júlí. Fyrir brottför í janúar greiðist 50% fyrir 31. október og afgangur fyrir 15. desember.
Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Jónsdóttir Njarðvík en hún hefur áratuga langa reynslu af skiptinámi og skiptinemum, Spáni og Spánverjum, sendingu og móttöku af Spánverjum og talar spænsku eins og innfædd. Einmitt vegna þessarar reynslu velur MUNDO að vinna einungis með skiptinám á Spáni. Þannig vinnum við einungis með land sem er öruggt, fjölskyldur sem við þekkjum og með samstarfsaðilum sem við treystum.
Margréti er hægt að ná í hjá: margret@mundo.is og í síma 6914646.