Description
Traustur samstarfsaðili
Eftir mikla umhugsun og leit að vænlegum og traustum samstarfsaðila ákvað Mundo að vinna með OPEN DOOR í Þýskalandi. Um ræðir traust samtök sem eru stór á markaði í Þýskalandi og hafa getið gott orð. Flestir vinna í sjálfboðavinnu fyrir samtökin en trúnaðarmenn fá greitt fyrir vinnu sína þannig að ef eitthvað kemur uppá þá er aldrei gripið í tómt og málin leyst í samvinnu alla aðila.
Það er engin tilviljun að Mundo velji samstarf um skiptinám í Þýskalandi. Löng hefð er fyrir þýskukennslu á Íslandi og hér er boðið upp á tækifæri til að ungmenni nái fullkomnu valdi á málinu og geti nýtt sér það að gagni í lífinu. Þýskukunnátta ungmenna er fjársjóður sem endist í lífi og starfi og er gagnleg til að ferðast um Þýskaland, Austurríki og Sviss.
Skiptinám getur verið stórkostleg reynsla sem hjálpar ungmennum að vaxa undurhratt á skömmum tíma auk þess að ná góðum tökum á nýju tungumáli. Rannsóknir sýna að þau ungmenni sem fara út sem skiptinemar búa að því alla ævi. Áhugi þeirra á alþjóðamálum eykst, áhugi á eigin menningu eykst auk þess sem einkunnir þeirra hækka við heimkomu.
Hægt að dvelja 3, 4 og 10 mánuði
MUNDO er sönn ánægja að bjóða upp á skiptinám í Þýskalandi. Skiptinámið er fyrir 15-18 ára krakka (miðað við aldurinn þegar lagt er af stað í skiptinámið) og geta þau valið á milli þess að dvelja þar í 3, 4 eða 10 mánuði. Dvalið er hjá vel völdum fjölskyldum víðsvegar um Þýskaland og nærri þeim öllum býr fulltrúi OPEN DOOR sem hefur valið fjölskyldurnar og fylgist með allan tímann.
Fjölskyldur
Fjölskyldurnar sem dvalið er hjá eiga það sameiginlegt að hafa alþjóðlega reynslu og skilning eða hafa alist upp í tvítyngdu umhverfi og skilja fullvel hvað menningarmismunur og aðlögun eru. Fjölskyldurnar sem við vinnum með eru af öllum stærðum og gerðum, stórar og smáar, barnlausar og barnmargar, þar sem eru giftir og ógiftir einstaklingar. Við vöndum okkur vel við að para saman ungmenni og fjölskyldu.
Dvalið er hjá fjölskyldum um allt Þýskaland.
Undirbúningur
Áður en ungmennin halda til fósturfjölskyldnanna fara þau á undirbúningsnámskeið í Köln en vitaskuld fara þau á námskeið á Íslandi einnig.
Þátttökuskilyrði:
1. Vera 15-18 ára þegar skiptinám hefst
2. Vera með grunn í þýsku. Hafa lært þýsku í 2 ár eða sambærilegt.
3. Vera samviskusamur nemandi og námsferil sem gefur til kynna að skiptinám sé ekki hindrun.
4. Hafa nægan þroska og sveigjanleika til að geta tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi.
5. Vera við góða heilsu andlega og líkamlega og laus við alvarlega námsörðugleika. Lesblinda flokkast ekki sem alvarlegir námsörðugleikar.
Dagsetningar
Þriggja mánaða dvöl hefst 27. ágúst / 31. janúar og lýkur 28. nóvember/ 25. apríl eftir því hvort farið er að hausti eða á vormisseri.
Fjögurra mánaða dvöl hefst 27. Ágúst / 31. janúar og lýkur 23. janúar / 27. júní eftir því hvort farið er að hausti eða á vormisseri.
Ársdvöl hefst 27. Ágúst og lýkur 25. júní
Umsóknarfrestur:
15. mars fyrir skiptinám sem hefst að hausti
15. október fyrir skiptinám sem hefst í janúar
Hvað er innifalið í gjaldinu?
1. Flug
2. Vandleg forkönnun á fósturfjölskyldum
3. Undirbúningur fyrir brottför
4. Undirbúningsnámskeið við komu til Þýskalands
5. Val á fósturfjölskyldu. Ungmenni má velja sér þrjú héruð sem mestan áhuga vekja og reynt er að verða við þeim óskum
6. Fullt fæði og húsnæði
7. Skóladvöl í opinberum þýskum skóla
8. Stuðningur, einstaklingsmiðuð ráðgjöf og eftirfylgni allan tímann.
9. Reglulegar fréttir berast foreldrum frá MUNDO
10. Handbók. Nemendur fá ítarlegan upplýsingabækling með gagnlegum upplýsingum um Þýskaland
11. Áreiðanleg samskipti, fagmennska og stuðingur ef eitthvað kemur uppá
12. Mögulegt er að sumar fjölskyldur hafi tvo skiptinema á sama tíma. Þeir eru aldrei af sama þjóðerni og slíkt er ekki gert nema foreldrar séu samþykkir því.
13. Tryggingar
Hvað er ekki innifalið í skiptináminu?
1. Skoðunarferðir
2. Skólabíll þar sem það á við
3. Tómstundir (tónlistarnám, dans og annað)
4. Skólaferðir
5. Tryggingar. Skylda er að vera með tilskyldar tryggingar og evrópskt sjúkrakort
6. Aukatímar í þýsku
7. Vasapeningar
8. Skólabækur
Verð fyrir 2016-2017 eru eftirfarandi:
3ja mánaða dvöl : 1.000.000
4 mánaða dvöl: 1.120.000
heilt skólaár: 1.550.000
Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Jónsdóttir Njarðvík en hún hefur áratuga langa reynslu af skiptinámi og skiptinemum, sendingu og móttöku skiptinema. Hún er einungis með menntaskólaþýsku og hefur þess vegna þýskumælandi starfsmann sem grípur inní ef þörf krefur. Þannig vinnur Mundo einungis með lönd sem eru örugg, fjölskyldur sem við þekkjum og með samstarfsaðilum sem við treystum.
Margréti er hægt að ná í hjá: margret@mundo.is og í síma 6914646.