Um er að ræða tveggja mánaða dvöl, þar sem þátttakandi ræður sig til starfa sem sjálfboðaliði á sumardagskrá leikskóla fyrir spænsk börn á aldrinum eins til sex ára. Þar með er viðkomandi kominn í beina tengingu við Spánverja og einmitt þann aldurshóp sem reynist jafnan vera besti spænskukennarinn; fordómalaus smábörn sem geta ekki annað en talað spænsku. Um er að ræða foreldrarekinn Montesori-leikskóla, sem þýðir að fólkið sem stendur að rekstrinum tekur hugmyndina um öflugt mennta- og menningarsamfélag alvarlega.
Þátttakandi verður búsettur hjá spænskri fjölskyldu tengdri leikskólanum í smábænum Zafra í Extremadura á Spáni. Zafra er einstaklega fallegur sögulegur bær á Suður-Spáni, þar sem íbúar eru 17.000 talsins. Samfélagið er opið fyrir gestkomandi og möguleikar á að kynnast fólki og menningunni mun meiri en í stærri borgum. Í Zafra er allt til alls og stutt að fara með rútu í heimsókn til annarra borga svæðisins eins og Sevilla eða Badajoz – eða þá til strandbæja.
Samhliða vinnunni á leikskólanum fer þátttakandi á spænskunámskeið tvö til þrjú skipti á viku síðdegis með þéttri dagskrá í spænskukennslu, sem er sniðin að þörfum viðkomandi. Að auki eru innifaldar þrjár skoðunarferðir um Suður-Spán sem gefa mikla innsýn í þetta einstaka sögulega svæði í Evrópu – og þjálfa þátttakendur í að ferðast sjálfstætt.
Æskilegt er að hafa traustan grunn í spænsku, svo sem nokkur ár af spænskunámi á framhaldsskólastigi. Einnig er nauðsynlegt að vera góður í samskiptum við börn og hafa opinn huga fyrir fjölbreyttum fjölskylduaðstæðum, enda verða samskiptin við fósturfjölskylduna nokkuð náin. Prógrammið er í boði fyrir einstaklinga á aldrinum 18 – 25 ára.
Tímabil: 1. júlí – 31. ágúst
Verð: 850.000 krónur
Aldur: 18 – 25 ára
Innifalið: Ferðakostnaður til og frá Spáni, fullt fæði (morgun-, hádegis- og kvöldverður), húsnæði, spænskunám, ferðalög innan Spánar (gisting og dagskrá), atvinnutryggingar sem og persónuleg þjónusta og stuðningur frá Mundo.
Fyrir nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við mundo@mundo.is eða með því að senda skilaboð í gegnum gluggann hér til hægri.