Velja herbergisgerð og greiða staðfestingargjald
Staðfestingargjald er 45.000 kr./mann
Ef þú vilt fara á eigin vegum, annaðhvort með vinum eða vera útaf fyrir þig, velur þú dagsetninguna sem hentar þér og starfsmenn Mundo bóka hótelið og finna bílstjóra til að aka þér á hótelið.
Verð frá : 168.000
Staðfestingargjald: 40.000 kr. (óafturkræft nema ferð falli niður)
Fjöldi farþega: lágmark 1 og hámark 12
Eftirstöðvar greiðast 6 vikum fyrir brottför.
Upplýsingar gefur Erlendur í s.561 4646. – Netfang: mundo@mundo.is
Heilsuhótelið er með 140 herbergi í mismunandi stærðum og gerðum allt eftir óskum hvers og eins. Þorpið við heilsuhótelið er einstaklega fallegt og er umlukt himneskum garði. Hægt er að fara í langar og stuttar gönguferðir, hjólatúr út í náttúruna.
Þetta er eitt þekktasta heilsuhótel Póllands í einstaklega afslöppuðu og fallegu umhverfi. Bærinn er rómaður fyrir heilsusamlegt loftslag, heilandi vatn og falleg og reisuleg hús.
Mundo mælir einnig með því að taka leigubíl yfir í hinn undurfallega miðaldabæ Kazimierz Dolny. Þangað fara pólskar kvikmyndastjörnur í sumarfrí og er dásamlegt að fara á markaðinn þar um helgar sem og ganga meðfram Vistula ánni sem er við bæinn. Áin er skipageng og lykillinn að fyrrum uppgangi bæjarins. Við mælum sérstaklega með veitingastaðnum Kaslik (grillbakkanum) og kaffi og köku á kaffihúsinu á Krakowska 6, Galeria u Dziwisza.
Verð miðast við 7 daga (6 nætur) á heilsuhótelinu með gistingu, fullt fæði á heilsuhótelinu, 11 klukkustundir af meðferðum og ótakmarkaðan aðgang að böðum við heilsuhótelið.
Fljótlegast er að fljúga til Varsjár og er akstur frá flugvellinum á heilsuhótelið tæpar 3 klukkustundir. Mundo getur verið þér innan handar með að finna leigubíl á hagstæðu verði en áætlaður kostnaður með leigubíl er um 20.000 kr aðra leið.
Herbergi 1: stærð 22-24m2
Fyrir tvo – 168.000 kr.
Fyrir einn – 185.000 kr.
Herbergi 2: 30-35m2
Fyrir tvo – 171.000 kr.
Fyrir einn – 188.000 kr.
Herbergi 3: 35-40m2
Fyrir tvo -174.000 kr.
Fyrir einn – 193.000 kr.
Öll herbergi eru með
Herbergin eru ekki þrifin daglega en hægt að panta þrif ef þörf er á.