Bóka/greiða staðfestingargjald
Staðfestingargjald er 94.000 kr./mann
Mörg okkar eigum ættir að rekja til Vesturfaranna svokölluðu og saga þeirra mörgum okkar hugleikin. Hefur ferð á “Íslendingaslóðir” verið draumur margra, að kynnast Nýja Íslandi og fólkinu þar sem heldur fast í rætur sínar með svo miklu stolti fyrir sögu forfeðra sinna.
Nú býður MUNDO upp á tækifæri til að kynnast og fræðast um Nýja Ísland í Kanada og taka þátt í Íslendingahátíðum í Gimli og Norður Dakota undir leiðsögn Vestur Íslendingsins Kents Lárusar Björnssonar sem er fæddur og alinn upp í Gimli. Hann starfar sem fararstjóri bæði hér á Íslandi og í Kanada.
Það er mikil upplifun að finna hve mikið er lagt í hátíðarhöldin við að fagna og minnast upprunans. Glæsileg og fræðandi dagskrá ferðarinnar hefst með að ekið er til Mountain í Thingvalla Township í Norður Dakóta. Heimamenn halda Íslendingahátíðina The Deuce (Tvisturinn) í 125 skipti í ár og verður mikið um dýrðir. Hér er heimasíða hátíðarinnar https://www.thedeuce.org Gist verður í 2 nætur í Walhalla hótelinu.
Næsta hátíð er í Gimli og verður ekið aftur yfir til Kanada og gist á Hecla Island sem er rétt fyrir utan Gimli. Þetta er 135. Árið sem þessi hátíð er haldin, og er nú haldið upp á að Fjallkonan birtist í hundraðasta skiptið. Hér er tengill á hátíðina https://www.icelandicfestival.com/
Síðustu tvær næturnar verða í Winnipeg, þar gefst tækifæri til að kynnast borginni, mannlífinu og kíkja í verslanir.
Fararstjóri: Kent Lárus Björnsson
Ferðatímabil: 1. til 8 ágúst 2024
Verð:475.000 kr./mann miðað við tvo í herbergi.
Aukagjald fyrir einbýli: 80.000 kr.
Staðfestingargjald: 94.000 kr. (óafturkræft nema ferð falli niður)
Fjöldi farþega: lágmark 10 – hámark 16
Eftirstöðvar greiðast 6 vikum fyrir brottför
Upplýsingar gefur Erlendur í s. 561 4646 netfang: mundo@mundo.is
Dagur 1 – fimmtudagur 01. ágúst.
Flogið frá Keflavík kl 10:00 millilent í Montreal og lent í Winnipeg kl 15:00. Þaðan er ekið á Airport hótel og gist í eina nótt.
Dagur 2 – föstudagur 02.ágúst.
Eftir morgunverð er ekið af stað í yfir landamærin til Dakota og stefnan tekin á íslendingahátíðina í Norður Dakóta
Hópurinn tékkar inn á Forest Wood Inn í Walhalla og gistir þar næstu 2 nætur.
Dagur 3 – laugardagur 03.ágúst.
Þessum degi verður varið í að fagna 125. íslendingahátíðinni í Norður Dakota sem er stór viðburður í huga íbúa sem eiga ættir sínar að rekja til íslands. Það er fjölbreytt dagskrá allan daginn að hætti heimamanna. Áfram er gist í Walhalla
Dagur 4 – sunnudagur 04.ágúst.
Eftir morgunverð er ekið til baka yfir landamærin til Kanada og stefnan sett á Hecla Island þar verður gist næstu 2 nætur. Á leiðinni verður komið við í Gimli og kíkt á fyrsta dag hátíðarinnar
Dagur 5 – mánudagur 05. ágúst.
Mánudagur er aðal hátíðardagurinn og verður deginum varið í Gimli
Dagur 6 – þriðjudagur 06. ágúst.
Heimsóknir í og við Gamla Ísland og ekið til Winnipeg og þar er gist næstu 2 nætur í miðbænum.
Dagur 7 – miðvikudagur 07. ágúst.
Frídagur í Winnipeg þar sem er hægt að versla og njóta borgarinnar.
Dagur 8 – fimmtudagur 08.ágúst.
Flogið frá Winnipeg kl 12:15 millilent aftur í Montreal þaðan flogið kl 23:30 og lent morguninn eftir kl 08:40.