Kóra- og strengjasveitarferðir til Ungverjalands eða annarra Evrópulanda
Áhyggjulausar tónleikaferðir – er það ekki draumur hvers kór- eða hljómsveitarstjóra? Viltu slá tvær flugur í einu höggi, fara í tónleikaferðalag og taka þátt í vinnustofum með helstu sérfræðingum á sínu sviði, hvort sem um er að ræða í kór- eða hljómsveitarstjórn.
Það væri okkur sönn ánægja að skipuleggja tónleikaferðalag fyrir kórinn þinn eða strengjasveitina þína. Við sérsníðum ferðir eftir óskum og þörfum hvers hóps. Við leggjum áherslu á tónleikaferðir til Ungverjalands en einnig tökum við að okkur skipulag um alla Evrópu. Okkur er mikið í mun að veita sértæka þjónustu, tryggja góða aðstöðu til tónleikahalds og fá áheyrendur á tónleikana. Að auki getum við boðið upp á vinnustofur fyrir kóra og hljómsveitir með þekktum prófessorum við tónlistarháskóla í Evrópu.
Við getum tekið að okkur að skipuleggja allt tónleikahald með öllu því sem það felur í sér auk þess að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá þess utan.
Mundo getur m.a. sinnt eftirfarandi:
Af nógu er að taka.
Dæmi um dagskrá sem gæti verið í boði í frítíma hópsins:
Listinn er endalaus. Fáið okkur á fund og við sérsníðum ferðina að ykkar þörfum. Hafið samband við Dagrúnu, á dagrun@mundo.is eða í síma 788-4646, fyrir frekari upplýsingar